Hvað er IPO IPO er sport sem rekja má aftur til ársin 1901 í Þýskalandi og leggur áherslu á að þróa og meta þá kosti í hundum sem gerir þá gagnlegri og betri félaga fyrir eigendur sína. Markmið með IPO þjálfun er að sýna fram á greind hundsins og gagnsemi. IPO metur stöðugleika skapgerðar hundsins, þol, byggingu, hæfileika til að greina lykt, vilja til vinnu, hugrekki og möguleika til þjálfunar hans.
Það er því skylda okkar sem unnum þessum tegundum (sem eru meðal annars: Schafer, Briard, Malinois, Dobermann, Risa Schnauzer, Boxer og Rottweiler) að viðhalda þeim eiginleikum sem æskilegir eru í ræktun og eini möguleiki okkar til þess að sannreyna að þessi eiginleikar séu til staðar er með þjálfun í IPO þar sem markmiðið er sett á próf. Erfiðleikastig IPO eru 3 og verður að ljúka prófi í 1 til að mega fara á næsta stig o.s.frv. En rétt er að nefna að IPO er eina vinnuprófið sem FCI viðurkennir sem gilt próf þegar kemur að meistaratitlum en þá titla fá einungis hundar sem hafa sýnt og sannað að þeir séu verðugir fulltrúar sinnar tegundar á allan hátt og er þetta sport stundað út um allan heim með þessi markmið að leiðarljósi.
Uppsetning IPO: Áður en hundur getur farið af stað í IPO próf þá þarf hann að klára svokallað BH próf. BH er próf sem að reynir á skapgerð hundsins við hinar ýmsar aðstæður í kringum fólk. Það innifelur grunnhlýðni, svo sem hælgöngu með og án taums, setjast, leggjast, innkall og ásamt verklegu prófi þar sem reynir á skapgerð hundsins við hversdagslegar aðstæður.
Skapgerðarhlutinn felur í sér hversdagslegar aðstæður svo sem umgengi innan um hóp af fólki, skrítin hávaða, skokkara, bíla og aðra hunda. Hundurinn verður að geta staðist þessi áreiti með góðum árangri til þess að fá að taka þátt í IPO prófi sem skiptist í 3 hluta.
A hluti IPO: Spor Sporahluti IPO prófs er notaður til þess að meta þjálfunareiginleika og getu hundsins til að rekja slóð. Sporið er mikil áreynsla á skapgerð og líkamlegt úthald hundsins. Slóð er lögð af ókunnri manneskju yfir tún, sá sem leggur slóðina leggur nokkra litla hluti á jörðina í slóðina, eftir ákveðinn tíma (kallað aldur slóðarinnar) er hundurinn látinn rekja slóðina. Hundurinn er í þar til gerðu spora beisli með 15 metra langa línu hangandi í beislinu. Stjórnandi heldur í línuna og gengur á eftir.
Hundurinn á að gefa merki ( markera) um leið og hann finnur þá hluti sem liggja í slóðinni. Einkunn ákveðst af því hversu áhugasamur og nákvæmur hundurinn fylgir slóðinni og hvort hann finnur alla hlutina sem skyldir hafa verið eftir í henni. Lengd, erfiðleiki og fjöldi hluta og aldur slóðar er stig hækkandi frá IPO-1 til IPO-3.
B hluti IPO: Hlýðni Hlýðnihluti IPO inniheldur margar mismunandi æfingar þar sem að hundur gengur við vinstri hlið stjórnanda og fylgir honum þétt eftir (nefnist venjulega hælvinna). Sumar þeirra eru gerðar innan um hóp af fólki, á meðan á hælvinnu æfingunum stendur er skotið af byssu til að vera viss um að hundurinn bregðist ekki illa við óvæntu hljóð áreiti/ snörpum hávaða.
Það eru einnig gerðar ýmsar æfingar þar sem að hundinum er skipað að setjast, leggjast og standa meðan stjórnandinn gengur frá honum. Úr þeim æfingum er hundurinn kallaður inn til stjórnanda. Hundurinn á einnig að sækja tréhlut sem er í mismunandi þyngdum yfir ýmsar hindranir og skila aftur til stjórnanda/eiganda.Allar hlýðni æfingarnar eru prófun á skapgerð og byggingu hundsins en mikilvægast er þó að það er verið að skoða vilja hundsins til að þjóna stjórnanda sínum.
C hluti IPO: Varnarhluti Í varnarhlutanum er hugrekki, líkamlegt úthald og snerpa hundsins prófuð. Það er nauðsynlegt að stjórnandi hafi stjórn á hundinum í þessum hluta sem og öllum fyrri atriðum prófsins .
Í æfingum þessa hluta þarf hundurinn að finna manneskju sem falin er á bakvið skýli/tjald. Á túninu sem prófið er framkvæmt eru sex skýli/tjöld. Hundurinn þarf alltaf að fara í það tjald/skýli sem stjórnandinn sendir hann í þó svo að hann viti að það sé tómt. Þegar hundurinn finnur svo manneskjuna á hann að láta stjórnanda sinn vita með gelti án þess þó að snerta manneskjuna sem stendur bak við tjaldið.
Þegar hundurinn hefur látið vita þá gengur stjórnandi til hundsins og skipar honum í hælstöðu (upp að vinstri hlið). Manneskjan úr tjaldinu gengur í átt til dómara en hundur og stjórnandi fylgja á eftir. Á leiðinni til dómara reynir manneskjan úr tjaldinu að gera árás á stjórnanda hundsins. Hundinum er kennt að stöðva árásarmanninn af með því að bíta án þess að hika í þar til gerða sérútbúna bólstraða “sleeve” sem manneskjan úr skýlinu/tjaldinu ber alltaf á annarri hendi. Ef hundurinn bítur annarstaðar eða sleppir ekki við skipun stjórnanda, sínir merki um hræðslu, grimmd eða stjórnandi hefur ekki stjórn á hundinum er hundinum og stjórnandi umsvifalaust vikið úr prófi.
Í varnarhlutanum er verið að ganga úr skugga um að hundurinn uppfylli þá kröfu um þau skapgerðareinkenni sem eiga að vera til staðar í tegundinni svo hann sé hæfur til ræktunar.
Hafa ber í huga að fyrir hvert IPO próf er gengið úr skugga um að hundurinn sé nóg og stöðugur í skapi til þess að gangast undir próf.
Stefna Dobermann Ísland er að enginn hundur fái að fara í C hluta IPO vinnunnar nema hann hafi sýnt fram á getu í A og B hlutanum áður og öll þjálfun í IPO byggist þannig upp að enginn getur einungis æft C hlutann. Dobermann Ísland hefur haldið úti æfingum allt árið um kring þar sem að hópur fólks hefur mætt og æft saman hlýðni með hundana sína.
Þar sem að IPO er notað til þess að sýna fram á þau skapgerðareinkenni sem eru hvað eftirsóknarverðust í vinnuhundum er hundur sem er vel þjálfaður í IPO oftast nær frábær heimilishundur og félagi. Vinnuhundur sem býr yfir stöðugri skapgerð og sjálfstrausti er í sátt við sjálfan sig og umhverfi sitt og ætti að vera öllu jöfnu rólegur en jafnframt vakandi yfir umhverfi sínu. Hann ætti að vera óttalaus og góður með börnum.
Vinnuhundur ætti ekki að bregðast óttaslegið eða taugaveiklað við óvenjulegu áreiti. Hundur sem er hræddur eða taugaveiklaður út af ótta við fólk eða aðstæður getur verið mjög hættulegur. IPO sportið er þróað til þess að sigta út þá einstaklinga frá ræktun þar sem þeir hundar gætu ekki klárað próf eða náð góðri einkunn. IPO þjálfun færir eigandanum góða stjórn á hundinum ásamt tækifæri til þess að setja skýr mörk á hvað telst góð og slæm hegðun. IPO þjálfun veitir hundi og eiganda mikla gleði þar sem að báðir aðilar hafa gaman af vinnunni enda fær hundurinn tækifæri til þess að þóknast eiganda sínum sem skapar sterkari tengsl þeirra á milli og fer gleðin ekkert á milli mála þegar horft er á vel þjálfaðan hund við æfingar.
Grein: Dobermann Ísland
|