
|

Affenpinscher |
|
|
 | Tegundalýsing Affenpinscher er líflegur, sjálfsöruggur, trúr og ástúðlegur hundur, en þó alvarlegur og þrjóskur. Þrátt fyrir að hann hafi undirbit var hann góður rottuveiðari. Hann er ekki hentugur til mikillar þjálfunar, en aftur á móti getur hann verið skemmtilegur félagi. Stærra afbrigði af Affenpincher varð útdautt í byrjun síðustu aldar. Hann elskar að vera innan um fjölskyldu sína og er yfirleitt góður með börnum. Affenpincher er góður varðhundur, og lætur vita ef ókunnuga ber að garði. Hann er hugmikill og heldur að hann sé mun stærri en hann er.
Uppruni Saga þessara tegundar er en óþekkt, en talið að hann sé kominn af Brussel Griffon, eða öfugt. Tegundin hefur verið til lengi, hann hefur sést á málverkum frá 17 öld. Affenpinscher þýðir ,,Apalegur Terrier” á Þýsku, nafnið fékk hann vegna litla andlitsins, sem er með svolítið apalegan svip.
Umhirða Affenpinscher er með strýhærðan feld sem þarf að reyta. Bursta þarf yfir feldinn reglulega, böðun þegar þess er þörf.
Hreyfing Affenpinscher þarf meðalmikla hreyfingu, hann er heppilegur sem borgarhundur.
Leyfilegir litir Helst af öllu ætti hann að vera svartur. Brúnir og gráir flekkir eða litbrigði leyfileg.
Hæð á herðakamb Hæð 25 - 30 sm.
Þyngd 4 kg. eða minna.
Staðreyndir
Áttu Affenpinscher? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net
|
|
|