Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 9 · Boston Terrier


Boston Terrier
 
 
 
Boston Terrier      

Tegundalýsing
Boston Terrier er góðlyndur, nærgætinn, vinalegur og mjög líflegur hundur. Boston Terrier er yfirleitt góður með börnum og vinalegur við ókunnuga. Hann er fjörugur, aðlagandi og skemmtilegur persónuleiki, sem verður strax einn af fjölskyldunni. Boston Terrier er  með stórt hjarta, sem gerir hann að góðum félaga. Tegundin er stundum nefnd ,,Ameríski herramaðurinn.” Hann er tilvalinn heimilishundur sem unir sér vel í borg. Hann þolir illa heita veðráttu. Árvakur lítill hundur, sem á ekki að vera árásagjarn.


Uppruni
Boston Terrier var skapaður af Amerískum ræktendum í kringum 1870 fyrir hefðbundin hundaslagsmál. Þeir blönduðu Bulldog og Bull Terrier til að sameina slagsmála hæfileika hjá báðum tegundunum. Síðan var Franska Bulldog bætt við. Tegundin er ekki algeng í Evrópu.

Umhirða
Feldhirða er ekki mikil, böðun þegar þess þarf. Augun og fellingarnar í andlitinu verða að vera hreinsaðar reglulega.

Hreyfing
Boston Terrier þarf reglulega hreyfingu en hann þolir þó ekki langa göngutúra, sérstaklega ekki í hita. 

Leyfilegir litir
Bröndóttur með hvítum blettum. Bröndótti liturinn verður að vera greinilegur um allan líkamann; Hvítir og svartir blettir, en bröndóttur með hvítum blettum æskilegri. Æskilegir blettir: Hvítt trýni, jafnvel hvít blesa yfir höfuðið, kragi, bringa, hluti af framfótum. og afturfætur fyrir aftan hækilbein.

Hæð á herðakamb
25 - 40 sm.

Þyngd
7 - 11 kg.

Staðreyndir

  • Upprunaland: Ameríka
  • Upprunatíma: 1800
  • Fyrstu not: Rottuveiðari og Félagi
  • Í dag: Félagi
  • Lífsskeið: 13 ár
  • Önnur nöfn: Boston Bull

Átt þú Boston Terrier?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net


Míó Eigandi: Birna Pálma.

Míó
Eigandi: Birna Pálma.

Míó Eigandi: Birna Pálma.

Míó
Eigandi: Birna Pálma.

Míó Eigandi: Birna Pálma.þetta er hann míó. Hann er endalaust fyndin og skemmtil

Míó
Eigandi: Birna Pálma.

þetta er hann míó. Hann er endalaust fyndin og skemmtilegur! 7 mánaða gamall á mynd.




Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 9