Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 9 · Cavalier King Charles Spaniel


Cavalier King Charles Spaniel
 
 
 
Cavalier King Charles Spaniel      

Tegundalýsing
Cavalier er vinalegur hundur, kátur og blíður, sem hefur orðið gífurlega vinsæll um allan heim. Á marga vegu er þetta fyrirtaks fjölskylduhundur og félagi. Cavalier er harðger, mjög félagslyndur og barnelskur. Hann er af þægilegri stærð, og er með þeim stærstu af smáhundunum. Cavalier þolir vel kalda veðráttu og er tiltölulega auðveldur í þjálfun. Virkur, þokkafullur, ástúðlegur og óttalaus. Þessi litli spaniel var eitthvað notaður sem veiðihundur sem rak upp bráð, þó aðalega var hann hafður sem félagi. Cavalier geltir yfirleitt ekki óhóflega.

Uppruni
Heimaland Cavalier er England en almennt er talið að hann eigi ættir sínar að rekja til Kína eða Japan. Árið 1920, kom Amerískur maður að nafni Roswell Eldridge á Crufts hundasýninguna í London í leit að King Chales Spaniel hundum með langt trýni, eins og sáust á málverkum eftir Van Dyck, af Karli konungi II og spaniel hundunum hans. Cavalier var nær útdauð tegund í lok 19. aldar en náði sér þó aftur á strik í kringum 1960. Árið 1940 var Cavalier viðurkennd tegund, en áður var hann sagður vera sama tegund og King Charles Spaniel.

Umhirða
U.þ.b. vikuleg burstun og mánaðarlegt bað. Passa þarf að bursta vel á bakvið eyrun, bringu og fána. Fylgjast þarf með augum og eyrum. Cavalier fer nokkuð mikið úr hárum.

Hreyfing
Cavalier þarf meðalmikla hreyfingu en sættir sig þó við það sem eigandinn býður honum. Hann elskar útivist og að fá að hlaupa laus. Æskilegt er fyrir Cavalier eigendur að hafa aðgang að garði.

Leyfilegir litir
Blenheim: kastaníubrúnir flekkir á perluhvítum grunni. Þrílitur: perluhvítur með svörtum flekkjum með brúnu á kinnum, yfir augum, innanfótar og undir skotti.
Rúbínrauður: einlitur kastaníubrúnn. Svartur og gulbrúnn: hrafnsvartur með brúnum flekkjum á kinnum, doppur yfir augum, innan í eyrum, á bringu , fótum og undir skotti.

Hæð á herðakamb
25 - 34 sm.

Þyngd
5 - 9 kg.

Staðreyndir

  • Upprunaland: Bretland
  • Upprunatími: 1925
  • Fyrstu not: Félagi
  • Í dag: Félagi
  • Lífsskeið: 9-11 ár

Tenglar
Cavalier deildin
Sænski Cavalier klúbburinn
Ameríski Cavalier klúbburinn
Eldlilju ræktun
Sjarmakots ræktun
Kjarna ræktun
Sifjar ræktun
Sjeikspír ræktun
Askur og Jeltsin
Móna og Mist


Viltu vita meira um tegundina?

Lestu nærmyndina um Cavalier

Átt þú Cavalier ?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net

Smelltu á "næsta síða" hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri innsendar myndir


Eldlilju Dilja Eigandi: Valdís Ósk Ottesen

Eldlilju Dilja
Eigandi: Valdís Ósk Ottesen

Eldlilju Dilja Eigandi: Valdís Ósk Ottesen

Eldlilju Dilja
Eigandi: Valdís Ósk Ottesen

Eldlilju Molly Eigandi Jón Hilmarsson

Eldlilju Molly
Eigandi Jón Hilmarsson

Eldlilju Isadóra Eigandi Jón Hilmarsson

Eldlilju Isadóra
Eigandi Jón Hilmarsson

Oliver Eigandi: Sjöfn Tryggvadóttir 

Oliver
Eigandi: Sjöfn Tryggvadóttir 

Seylar-Aþena-Lukka Eigandi Svanborg S. Magnúsdótti

Seylar-Aþena-Lukka
Eigandi Svanborg S. Magnúsdótti

Ronja (Ljúflings Æsa Brá) Eigandi: Linda Rós HelgadóttirFædd: 07.05.2008 Ronju f

Ronja (Ljúflings Æsa Brá)
Eigandi: Linda Rós Helgadóttir

Fædd: 07.05.2008 Ronju finnst mjög gaman að grafa hina ýmsu hluti og kemur mishrein inn eftir það ;-)

Alexía Lady Eigandi Kristín W. GunnarsdóttirKemur frá Eldlilju og fæddist 29 nóv

Alexía Lady
Eigandi Kristín W. Gunnarsdóttir

Kemur frá Eldlilju og fæddist 29 nóv´08 og er 3 mán. á þessari mynd.

Sesar  Eigandi: Dísa Edwards, Keflavík

Sesar
Eigandi: Dísa Edwards, Keflavík

Sesar  Eigandi: Dísa Edwards, KeflavíkCavalierinn heitir Sesar en hann er 6

Sesar
Eigandi: Dísa Edwards, Keflavík

Cavalierinn heitir Sesar en hann er 6 mánaða og fæddist 15.maí 2008. Hann kemur frá Ameríku.

Freyja  Eigandi: Rakel Guðmundsdóttirþetta er hún Freyja litla að leika sér í ka

Freyja
Eigandi: Rakel Guðmundsdóttir

þetta er hún Freyja litla að leika sér í kassa með Söndru sinni

Ljúflings Ægir Eigandi: Katrín Huld, Lee Roy og Fjölskylda.

Ljúflings Ægir
Eigandi: Katrín Huld, Lee Roy og Fjölskylda.


Næsta síða


Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 9