Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 9 · Chihuahua


Chihuahua
 
 
 
Chihuahua      

Tegundalýsing
Chihuahua er minnsta hundategund heims og vegur aðeins í kringum 2 kg. Þó hann sé lítill í stærð heldur hann sjálfur að hann sé heimsins stærsti hundur. Sagt er að hann sé stór hundur sem hafi lent í litlum búk. Tryggur, húsbóndahollur, mjög fjörugur og greindur. Chihuahua á það til að umgangast bara hunda af sömu tegund, þess vegna þarf að umhverfisvenja þá vel frá hvolpsaldri. Þeir eru viðbragðsskjótir, djarfir og hugaðir litlir hundar. Komið hefur fyrir að fólk hafi komist upp með það að Chihuahua hundurinn þeirra fær inngöngu með þeim á hótel og aðra álíka staði, svo lítill er hann. Chihuahua verður mjög háður eiganda sínum og oft á verði gagnvart ókunnugum. Hárafar er mismunandi, ýmist snöggt eða loðið.

Uppruni
Uppruni Chihuahua er enn dulinn. Sérfræðingar geta sér til um að litlir hundar, líkir og Chihuahua hafi komið til Ameríku með spænska hernum frá Hernando Cortes árið 1519. Önnur kenning er sú að kínverskir sjóferðalangar hafi tekið með sér litla smáhunda til Ameríku fyrir komu þeirra til Evrópu. Einnig er talið að tegundin sé uppruninn í Mexíkó, sem er talin líklegasta kenningin. Tegundin var fyrst flutt til Evrópu (Bretlands) árið 1850. Chihuahua er nefndur eftir fylki í Norður Mexíkó, þaðan var hann fluttur til Evrópu og síðan víða um heim. Chihuahua tók þátt í helgisiðum í Mexíkó fyrir mörgum árum, þeir voru sagðir vera heilagir, þeim var stundum fórnað fyrir guðina.

Umhirða
Snögghærður Chihuahua þarf litla sem enga feldhirðu, en bursta þarf síðhærða afbrigði reglulega. Böðun þegar nauðsin þykir
. Klær er klipptar eftir þörfum og fylgjast þarf með augum og tönnum (vegna tannsteinsmyndunar).

H
reyfing
Chihuahua verðu heilbrigðari og ánægðari ef hann fær reglulega hreyfingu. Hann ætti að fá daglega meðallanga göngutúra. Chihuahua er viðkvæmur gagnvart kulda.

Leyfilegir litir
Allir litir leyfilegir. Vinsælustu og algengustu litirnir eru ljósgulbrúnn eða brúnn, súkkuaðilitaður, ljósgulbröndóttur eða brúnn og hvítur, kremlitaður, ljósgulur og silfur, silfurgrár, svartur og brúnn og svartur.

Hæð á herðakamb
Ekki skilgreind
.

Þyngd
1,5 - 3 kg. Hundar yfir 3 kg. óæskilegir.

Staðreyndir

  • Upprunaland: Mexíkó
  • Upprunatími: 1800?
  • Fyrstu not: Félagi
  • Í dag: Félagi
  • Lífsskeið: 13 - 14 ár
  • Önnur nöfn: Mexíkóskur Dverghundur

Tenglar
Chihuahua deildin
Perluskins ræktun
Hollenski Tjúa klúbburinn
Breski Tjúa klúbburinn
Ástralskur Tjúa klúbbur

Viltu vita meira um tegundina?
Lestu nærmyndina um Chihuahua.



Átt þú Chihuahua?

Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net

Smelltu á "næsta síða" hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri innsendar myndir


Hellirs Lukka Eigandi Rakel Ýr Björnsdóttir.

Hellirs Lukka
Eigandi Rakel Ýr Björnsdóttir.

Hellirs Lukka Eigandi Rakel Ýr Björnsdóttir.

Hellirs Lukka
Eigandi Rakel Ýr Björnsdóttir.

Hellirs Lukka Eigandi Rakel Ýr Björnsdóttir.Fædd 8 jan. 2009.

Hellirs Lukka
Eigandi Rakel Ýr Björnsdóttir.

Fædd 8 jan. 2009.

Amor Eigandi: Heiðbrá SteinþórsdóttirFæddur 14 Nov 2009.

Amor
Eigandi: Heiðbrá Steinþórsdóttir

Fæddur 14 Nov 2009.

Tyson Eigandi:Harpa Sól BirgisdóttirTysin steinsofandi í fanginu á Alexöndru. Ty

Tyson
Eigandi:Harpa Sól Birgisdóttir

Tysin steinsofandi í fanginu á Alexöndru. Tyson er eins árs.

Freyja Eigendur:  Lea Tómasdóttir og Ragnar Smári Ragnarsson

Freyja
Eigendur: Lea Tómasdóttir og Ragnar Smári Ragnarsson

Sörlaskjóls Juno Jazz Amandas Eigandi: Elísa Hafdís Hafþórsdóttir

Sörlaskjóls Juno Jazz Amandas
Eigandi: Elísa Hafdís Hafþórsdóttir

Zorro Eigendur: Guðlaug Castberg Albertsdóttir og Helgi Rúnar Björnsson

Zorro
Eigendur: Guðlaug Castberg Albertsdóttir og Helgi Rúnar Björnsson

Zorro Eigendur: Guðlaug Castberg Albertsdóttir og Helgi Rúnar Björnsson

Zorro
Eigendur: Guðlaug Castberg Albertsdóttir og Helgi Rúnar Björnsson

Esja Eigandi: Andrea María Fleckenstein

Esja
Eigandi: Andrea María Fleckenstein

Esja Eigandi: Andrea María FleckensteinEsja er yndisleg 7 ára chihuahua tík sem

Esja
Eigandi: Andrea María Fleckenstein

Esja er yndisleg 7 ára chihuahua tík sem elskar ekkert meira en að kúra og fara í sólbað :)

Himna Tímon Hektor Eigandi: Ásthildur Gyða Garðarsdóttir / Garðar J.

Himna Tímon Hektor
Eigandi: Ásthildur Gyða Garðarsdóttir / Garðar J.


Næsta síða


Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 9