
|

Havanese |
|
|
 | Tegundalýsing Oft kallaður Bichon Havanese. Havanese er blíður, fjörugur og greindur hundur. Hann verður mjög háður fjölskyldu sinni og er yfirleitt góður með börnum. Havanese eru mjög félagslyndur og honum lyndir vel við önnur gæludýr á heimilinu. Hann læra fljótt og eitt sinn mátti sjá þennan hund í fjölleikahúsum. Havanese. Hann þolir vel borgarlíf. Havanese er mjög ástúðlegur, vingjarnlegur og mannblendinn hundur, en þrjóskur. Rétt þjálfun nauðsinleg sem og umhverfisþjálfun. Havanese geta verið svolítlar dramafrottningar.
Uppruni Havanese er af Bichon ætt, líklegast komin af Bolongse sem hefur jafnvel verið blandað við litla púðla eða Bichon Frise. Upprunin á Vestur miðjarðarhafssvæðinu. Sumir halda því fram að Havanese hafi borist til Kúbu og þróast þar frekar. Nokkrum hundum var smyglað frá eyjunni til Bandaríkjanna og varð tegundin nokkuð vinsæl þar og nýtur frekari vinsælda um heiminn.
Umhirða Dagleg burstun og vikulegt bað, sov að feldurinn fari ekki í flóka. Gott er að binda hárin á höfði í tagl dagsdaglega, þó svo að þeir séu ekki sýndir með það. Hægt er að klippa hundanna sutt þá verður feldhirða þar af leiðandi minni.
Hreyfing Havanese þarf ekki mjög mikla hreyfingu, en hefur þó gaman og gott af henni og þarf reglulega göngutúra.
Leyfilegir litir Hvítir (sjaldgæft er að þeir séu hreinir hvítir að lit), ljósgulbrúnie (örlítill svartur skuggi leyfilegur), svartur, havana-brúnn, tóbaks litaður, rauðbrúnn.Blettir af áðurgreindum litum leyfilegir.
Hæð á herðakamb 21 - 29 sm.
Þyngd Ekki skilgreynd
Staðreyndir
-
Upprunaland: Vestur miðjarðarhafssvæðið/Kúba
-
Upprunatími: Miðaldir
-
Fyrstu not: Rottuveiðari, félagi
-
Í dag: Félagi
-
Lífsskeið: 14 ár
-
Önnur nöfn: Bichon Havanese, Havana Silk dog.
Átt þú Havanese? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net 
Silla og Mikki Eigendur: Hildur Anissa og Sölvi Snær Silla og Mikki innflutt frá Þýskalandi | 
Lubbi frá Álfhólfsræktun Eigandi Gerður Guðjónsdóttir.
Úr fyrsta gotinu sem fæddust hér á landi 25. mars 2006. Ræktandi er Ragnar Már Reynisson | 
Sunna Eigandi: Sif Traustadóttir
Sunna er innflutt. | 
Castro Havana Eigendur: Kolbrún og Tinna, Keflavík.
Hann er úr Álfhólsræktun og er fæddur 15. mars 2007. Flottur gæji sem elskar að vera úti í náttúrunni :) | 
Þarfur Eigandi: Kristrún og Maggý
Hann er úr Álfhólsræktun og fæddist í janúar 2007. Hann er ný klipptur á myndinni. |
|
|
|