
|

Japanskur Chin |
|
|
 |
Tegundalýsing Japanski Chin er greindur, ánægður og kátur lítill hundur, sem elskar að vera miðja athyglinnar. Hann er yfirleitt barngóður og einnig góður í sambúð með öðrum hundum og dýrum. Hann er stundum hamslaus, Japanskur Chin er harðger, líflegur og árvakur. Hann verður mjög háður eiganda sínum. Ástúðlegur og blíður, hann geltir sjaldan sé tekið fyrir það strax og er vingjarnlegur félagi. Chin er tortrygginn gagnvart ókunnugum og þarf ákveðna þjálfun. Hann þolir nokkuð vel kalda veðráttu og borgarlíf. Þessi litla tegund er mjög algeng um allan heim.
Uppruni Japanskur Chin var hundur keisarahirðarinnar í Japan. Einn japanskeisaranna sem var fæddur á ári hundsins, tók Chin í guðatölu, það jók mjög á virðingu hundsins. Hann barst til Evrópu og Ameríku á 19 öld. Í Japan var hann gæluhundur hefðar kvenna, einnig þegar hann kom til Evrópu var hann aðalega í eign hefðarfólks. Viktoríu drottning átti einn.
Umhirða Chin er hreinlegur hundur, bursta þarf feldinn reglulega, passa þarf sérstaklega vel bakvið eyrun. Fylgjast þarf vel með augum, eyrum og trýni. Klippa þarf klær eftir þörfum og baða þarf hann reglulega. Tegundin þolir hita illa.
Hreyfing Japanski Chin þarf ekki mikla hreyfingu en hefur gaman og gott af henni. Varist að ofgera þá vegna öndunarerfiðleika.
Leyfilegir litir Svartur og hvítur eða rauður og hvítur. Aldrei þrílitur. Hvít blesa er mikils metin.
Hæð á herðakamb U.þ.b. 25 sm.
Þyngd 2 - 6 kg.
Staðreyndir
Tenglar Breski Chin klúbburinn
Átt þú Chin? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net
Smelltu á "næsta síða" hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri innsendar myndir 
Hófí Eigandi Valgerður Gunnarsdóttir
| 
Tanja Eigandi: Regína Thorarensen | 
Molly og Prins Eigandi: Sigrún Arnrúnardottir | 
Prins Eigandi: Sigrún Arnrúnardottir
Þetta er prins hann er mikill sófa hundur. | 
Tríton Eigandi: Hanna Rún | 
Tríton Eigandi: Hanna Rún | 
Tríton Eigandi: Hanna Rún
Hann er hér 12 vikna og býr á Akureyri. | 
Sjarmakots Mizuki og Sjarmakots Mitzi. Ræktandi: Ingunn Hallgrímsdóttir. | 
Sjarmakots Yoko Eigandi & rækt: Ingunn Hallgrímsdóttir.
| 
Sjarmakots Yoko Eigandi & rækt: Ingunn Hallgrímsdóttir. | 
Marínó Eigandi: Sigurrós Einarsdóttir | 
Marínó Eigandi: Sigurrós Einarsdóttir | |
Næsta síða |
|
|