Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 9 · Kyi Leo


Kyi Leo
 
 
 
Kyi Leo

Tegundalýsing
Þessi yndislegi hundur er ávalt glaður og ánægður. Hann er líflegur og hefur kvikar hreyfingar líkt og köttur. Fjörugur, kátur, blíður og mannelskur. Kye Leo er góður með börnum sem kunna að umgangast hunda, einnig er hann góður með öðrum hundum og dýrum. Þessi hundur er fullur af orku og leik, hann getur verið góður varðhundur. Hann gerir allt til að gleðja eigandann en er þó nokkuð fælinn við ókunnuga.

Uppruni
Saga tegundarinnar byrjar 1950, þá var Lhasa Apso blandað við Maltese í San Francisco. Áframhaldandi ræktun hófst í San José í Californiu og stóð yfir í 20 ár. Maður að nafni Harriet Linn samdi og skrifaði niður ræktunarmiðin og valdi einnig nafnið á tegundina. Tegundin er ekki en viðurkennd af FCI.

Umhirða
Dagleg burstun yfir síðan silkifeldinn er nauðsinleg svo ekki myndist flókar.

Hreyfing
Kyi Leo er orkumikill hundur sem sér að mestu leiti sjálfur um hreyfingu sína hafi hann hefur aðgang að góðum garði. Hann hefur þó mjög gaman af göngutúrum.

Leyfilegir litir
Svartur og hvítur.  

Hæð á herðakamb
20 - 30 sm.

Þyngd
4-6 kg.

Staðreyndir

  • Upprunaland: Ameríka
  • Upprunatími: 1972
  • Fyrstu not: Félagi
    Í dag: Félagi
  • Lífsskeið: 12-14 ár

Átt þú Kyi Leo?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net





Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 9