Tegundalýsing Lhasa Apso er sjálfstæður, dálítið þrjóskur hundur í góðu jafnvægi. Hann er barngóður og hentar einnig með öðrum gæludýrum á heimilinu. Lhasa Apso er harðger, hugrakkur og ávalt árvakur. Fremur fáskiptinn við ókunnuga. Hann er góður varðhundur enda þjónaði hann m.a. þeim tilgangi í Tíbet. Lhasa Apso er kátur, ákveðinn, rólegur og greindur. Hann þolir vel kalda veðráttu og borgarlíf.
Uppruni Lhasa Apso er mjög gömul hundategund, hann hefur verið uppi í Tíbet í þúsundir ára. Hann var hafður í musterum og höllum, og fínustu hundarnir bjuggu með Dalai Lama. Lhasa Apso var notaður sem varðhundur í munkaklaustrunum og gelti á óviðkomandi gesti. Um langt skeið ólst tegundin upp í Tíbet því Kínverjar voru tregir að hleypa hundunum úr landi. Fyrstu Lhasa Apso hundarnir bárust til bandaríkjanna í kringum árið 1930. Fyrsta ræktunarmiðið var skrifað árið 1934.
Umhirða Bursta og greiða þarf Lhasa Apso daglega og baða reglulega. Klær eru klipptar eftir þörfum. Fylgjast þarf vel með augum og eyrum. Klippa þarf hár á milli þófa. Lhasa fer lítið sem ekkert úr hárum.
Hreyfing Lhasa Apso sættir við það sem eigandinn býður honum en hefur þó gaman af allri hreyfingu. Honum er illa við að vera skilinn eftir einn.
Leyfilegir litir Gylltur, dökkur, hunangslitaður, dökk grár, flögubergs grár, reykgrár, marglitur (nokkrir aðgreindir litir; svartur, hvítur eða brúnn).
Hæð á herðakamb Rakkar 25.4 cm. Tíkur örlítið minni.
Þyngd Þyngd er ekki skilgreind í ræktunarmiði. En Lhasa Apso vegur yfirleitt um 6 - 9 kg.
Staðreyndir
Tenglar Ameríski Lhasa klúbburinn Sænski Lhasa klúbburinn
Átt þú Lhasa Apso? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net 
AMCH Suntory Summerhill Sabrina Eigandi: Susanna Bjornsson og Jan Bernards.
Sóley er hún kölluð. | 
ISCH Ermintrude Rondo Furioso og INTCH ISCH Medoc April Star Eigandi: Hallur Kristjánsson.
Þetta eru ISCH Ermintrude Rondo Furioso (hundur, til vinstri) og INTCH ISCH Medoc April Star (tík, hægra megin); tveir Lhasa Apso hundar sem búa á Íslandi..... þeir eru með heimasíðu sem er nú loksins aftur komin í gagnið (hún er á slóðinni lhasa.g3z.com eða www.hi.is/~eah/LhasaApso). | 
Stings Ragtime Reel Eigandi: Svava Kristín Ingólfsdóttir. | 
Stings Ragtime Reel Eigandi: Svava Kristín Ingólfsdóttir. | 
Stings Ragtime Reel Eigandi: Svava Kristín Ingólfsdóttir.
Við búum í Svíþjóð en flytjum hann heim einn dagin þegar efni eru á. Raggi er hann kallaður en ættarbókar nafnið er Stings Ragtime Reel, en hann er af austurískum og sænskum foreldrum. Hann á eins árs afmæli í dag, fyrsta november 2002. Við höfum heyrt að það sé eitt par til á Íslandi og vildum gjarnan komast í samband, þó ekki væri annað en netsamband við viðkomndi. |
|