
|

Litli Ljónahundur |
|
|
 |
Tegundalýsing Litli ljónahundurinn eða Löwchen, er líflegur, greindur, ástúðlegur og óttalaus. Hann er hraustur hundur sem getur þó verið sjálfsviljugur. Litli ljónahundurinn er skemmtilegur gæluhundur sem er fullur af orku og fjöri, harðger og mjög sterkbyggður. Hann þolir vel heita veðráttu. Litli ljónahundurinn er blíður með börnum og ágætis varðhundur. Goya er einn af mörgum listamönnum sem málað hefur þennan fjöruga litla hund. Ljónaklippingin lætur hann líta virðulega út.
Uppruni Þessi Bichon hundur er sannur Evrópskur hundur sem á forfeður um flest lönd suður Evrópu. Hann er skyldur Maltese og öðrum Bichon hundum frá mið-Evrópu. Litli ljónahundurinn var vinsæll á miðöldum hjá yfirstéttar fólk aðalega frá Ítalíu, Spáni, Þýskalandi og Frakklandi. Hefðardömurnar tóku upp á því að klippa þessa hunda í ljónaklippingu, nafnið fékk hann vegna hennar. Tegundin dó næstum út í seinni heimstyrjöldinni. Belgísk kona sem var áhugasöm um tegundina fór um heim allan og safnaði saman ljónahundum sem hún fann og hóf að rækta þá, þökk sé henni að tegundin dó ekki út. Tegundin er núna sjaldgæf.
Umhirða Bursta þarf hann daglega. Ef sýna á hundinn, er hann klipptur í sérstaka ljónaklippingu.
Hreyfing Hann aðlagar sig vel að íbúðarlífi, ef hann fær daglegar gönguferðir.
Leyfilegir litir Allir litir og samsetning lita leyfileg. Fyrir utan brúnan (súkkulaði-og lifurbrúnan).
Hæð á herðakamb 25 - 32 sm.
Þyngd 4 - 8 kg.
Staðreyndir
- Upprunaland: Frakkland
- Upprunatími: 1600
- Fyrstu not: Félagi
- Í dag: Félagi
- Lífsskeið: 12-13 ár
- Önnur nöfn: Löwchen, Little Lion dog.
Átt þú Löwchen? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net
|
|
|