
|

Maltese |
|
|
 | Tegundalýsing Maltese er ljúfur og árvakur lítill hundur, stundum viðkvæmur. Hann er elskulegur, og yfirleitt góður með börnum og öðrum dýrum. Hann er fjörugur, greindur, líflegur og skemmtilegur félagi. Hann geltir fremur mikið sé ekki tekið fyrir það. Maltese var eitt sinn kallaður Maltese Terrier. Hann þolir vel heita veðráttu og borgarlíf. Maltese er harðger og óþreytandi. Kátur, ástúðlegur en þó rólegur, hann er tilvalinn félagi. Ákveðin þjálfun nauðsinleg.
Uppruni Maltese er mjög gömul tegund, talið er að uppruni hans nái allt að 6.000 ár f.k. og deilt er mikið um upprunaland hans. Forfeður Maltese veiddu líklega rottur og mýs á höfnum borga á miðjarðarhafssvæðinu. Lík tegund var til í forn Egyptalandi, Grikklandi og í Róm. Einna helst er þó talið að Maltese sé frá Möltu eða frá frá bænum Melita á Sikiley, þó eru engar sannanir fyrir því. Eldri tilgátur geta líka til hann gæti verið uppruninn í borginni Melita í litlu Asíu fyrir mörg þúsundum árum síðan. Semsagt, uppruna Maltese er hulinn. Maltese er lítill hundur sem aðallinn féll fyrir. Tegundin var í uppáhaldi hjá Konungsfólki undir stjórn Elísabetu I. Maltese eins og hann lítur út í dag, var líklega kynblandaður við dverg Spaniela og litla Púðla. Margir af síðhærðum smáhundum heims í dag eru komnir af Maltese.
Umhirða Dagleg feldhirða er nauðsinleg og baða verður Maltese reglulega. Erfitt getur reynst að halda feldinum hvítum. Hreinsa þarf í kringum augun daglega. Fylgjast þarf með eyrum. Ef hundurinn á að verða sýningarhundur þarf að pakka feldinum upp, því annars nær hann ekki að verða gólfsíður. Baða þarf hann vikulega og greiða þarf honum daglega og endurpakka.
Hreyfing Maltese þarf meðal hreyfingu, og hefur gaman af henni. Maltese líkar ekki að vera skilin eftir einn. Tegundin þolir raka og kulda fremur illa.
Leyfilegir litir Perluhvítur. Fölur beinhvítur leyfilegur. Vottur af fölum appelsínugulum lit er látið viðgangast, svo lengi sem þau líkjast einlitum feldinum, en það er þó galli.
Hæð á herðakamb Rakkar 21 - 25 sm. Tíkur 20 - 23 sm.
Þyngd 3 - 4 kg.
Staðreyndir
-
Upprunaland: Ítalía - Miðjarðarhafssvæðið
-
Upprunatími: Fornöld
-
Fyrstu not: Félagi
-
Í dag: Félagi
-
Lífsskeið: 15 ár
-
Önnur nöfn: Maltese Terrier, Bichon Maltese, Straight-haired Bichon
Tenglar Finnski Maltese klúbburinn Ameríski Maltese klúbburinn Maltese síða
Átt þú Maltese? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net 
Molly Eigandi: Unnur | 
Molly Eigandi: Unnur | 
Molly Eigandi: Unnur Hér er mín litla maltese tík hún Molly sem er fædd 8/11 2009 | 
Freyja Eigandi: Hanna Gréta
Hér er mynd af Maltese sem heitir Freyja Sönderborg og er fædd í Danmörku þann 17 júni 2009. | 
Birta Eigandi: Valgerður Hauksdóttir.
Þessi Maltese dama keppti um besta hvolp sýningar hjá HRFÍ í mars 2004. |
|
|
|