Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 9 · Papillon


Papillon
 
 
 
Papillon      

Tegundaýsing
Papillon (sem þýðir fiðrildi á frönsku) fékk nafnið vegna eyrnanna sem minna helst á fiðrildavængi, og þegar hann hleypur er líkt og hann blaki vængunum. Papillon er lítill og fíngerður hundur, hann er alltaf einstaklega fjörugur og vinalegur og bindur sig traustum böndum við eiganda sinn og verður stundum eigingjarn og þykist eiga hann. Hann getur laðað sig að lífi í borg sem byggð. Papillon er barngóður hundur sem auðvelt er að þjálfa, hann hefur náð góðum árangri m.a. í hundafimi. Hann er líflegur, ástúðlegur, ákafur, ávalt árvakur og stundum nokkuð fjarlægur ókunnugum.  Papillon og Phaléne eru sama tegundin ,,Contiental Toy Spaniel,” bara sitthvort afbrigðið. Ræktunarmið þeirra er nákvæmlega það sama, nema þegar kemur að lýsingu á eyrnastöðu.

Uppruni
Sögur segja að Dwarf Spaniel sem var uppi á 16 öld, sé forfaðir Papillon. Phaléne er eldri en Papillon sem kom fram á 19 öld
. Ræktunarmiðið var viðurkennt árið 1937.

Umhirða
Regluleg burstun, sérstaklega eyru, skott og buxur. Böðun reglulega.

Hreyfing
Papillon þar meðalmikla hreyfingu, og hefur gaman af allri útivist.

Leyfilegir litir
Allir litir leyfilegir á hvítum grunni. Hvítur litur á líkama og fótum verður að vera ráðandi. Nokkuð breið, hvít blesa þykir flott, en ríkjandi hvítur litur á höfði er galli. Varir, augnaumgjörð, og nef verður að vera svart.

Hæð á herðakamb
Um 28 sm.


Þyngd

Til eru tvö þyngdarmörk; 1.5 - 2.5 kg. Og 2.5 - 4.5 kg. Þyngd ætti að vera í samræmi við stærð.

Staðreyndir

  • Upprunaland: Frakkland - Belgía
  • Upprunatími: 1600
  • Fyrstu not: Félagi
  • Í dag: Félagi
  • Lífsskeið: 13-15 ár
  • Önnur nöfn: Continental Toy Spaniel, Fiðrildahundur

Tenglar
Sænski Papillon klúbburinn
Papillon deildin
Aiming High ræktun
Englakots ræktun
Fiðrilda ræktun
Hálsakots ræktun
Höfðaborgar ræktun
Hlíðar ræktun
Royal Ice ræktun

Villtu vita meira?
Lestu nærmyndina um Papillon

Átt þú Papillon?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net

Smelltu á "næsta síða" hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri innsendar myndir


Sisaska Eigandi: Dilla

Sisaska
Eigandi: Dilla

Donni Eigandi Helga GísladóttirÞetta er hann Donni. Hann er 4 mánaða á þessari m

Donni
Eigandi Helga Gísladóttir

Þetta er hann Donni. Hann er 4 mánaða á þessari mynd.

Líló  Eigendur. Þórdís Linda Dúadóttir og Elísabet Kristín Guðmundsdóttir. 

Líló
Eigendur. Þórdís Linda Dúadóttir og Elísabet Kristín Guðmundsdóttir. 

Hún fæddist 14nóv 2006. Líló er mjög róleg og elskar að leika sér að tuskudýrum og liggja milli lappana á manni.

Fífí Eigandi: Lára KristínardóttirÞetta er hún Fífí tveggja mánaða papillon tík.

Fífí
Eigandi: Lára Kristínardóttir

Þetta er hún Fífí tveggja mánaða papillon tík.

Hekla Eigandi: Dóra Þorgilsdóttir

Hekla
Eigandi: Dóra Þorgilsdóttir

Hekla Eigandi: Dóra ÞorgilsdóttirÞetta er hún Hekla, hún er fædd 25 júlí 2005. H

Hekla
Eigandi: Dóra Þorgilsdóttir

Þetta er hún Hekla, hún er fædd 25 júlí 2005. Hún er mjög skemmtileg tík sem hefur gaman af að leika sér, stela sokkum og hrista leikföng og er mikið fyrir að kúra hjá mömmu sinni. 

Patti Eigandi: Eygló Anna Þorkelsdóttir.Þetta er Patrik (Patti) 5 mánaða.

Patti
Eigandi: Eygló Anna Þorkelsdóttir.

Þetta er Patrik (Patti) 5 mánaða.

Alex og Coco Eigandi: Halldóra Þormóðsdóttir.

Alex og Coco
Eigandi: Halldóra Þormóðsdóttir.

Butterfly Aríel Eigandi: Dagný Eiríksdóttir.Butterfly Aríel hún er 4 mánaða á my

Butterfly Aríel
Eigandi: Dagný Eiríksdóttir.

Butterfly Aríel hún er 4 mánaða á myndinni.

Skotta Eigandi: Guðrún Sigríður Helgadóttir.Skotta er skemmtileg 7 mánaða k

Skotta
Eigandi: Guðrún Sigríður Helgadóttir.

Skotta er skemmtileg 7 mánaða kelin papillon tík. Það skemmtilegasta sem hún gerir er að stela sokkum frá eigendum sínum og fela þá víðs vegar um húsið.

Royal Ice Appolo Eigandi: Íris Gunnarsdóttir

Royal Ice Appolo
Eigandi: Íris Gunnarsdóttir

Royal Ice Appolo Eigandi: Íris Gunnarsdóttir

Royal Ice Appolo
Eigandi: Íris Gunnarsdóttir


Fyrri síða     Næsta síða


Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 9