Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 9 · Pekinghundur


Pekinghundur
 
 
 
Pekinghundur      

Tegundalýsing
Pekinghundurinn er hugrakkur, líflegur, viðkvæmur og sjálfstæður hundur, sem verður mjög háður eiganda sínum, en varkár gagnvart ókunnugum. Þeir eiga það til að gelta mikið og eru því góðir varðhundar. Pekinghundurinn þolir ekki alltaf að vera innan um börn. Hann þolir borgarlíf mjög vel og er yfirleitt góður með öðrum hundum og gæludýrum. Ljónslegur í útliti, árvakur og greindur í framkomu. Pekinghundur er ekki hentugur til mikillar þjálfunar.

Uppruni
Þetta er ein elsta hundategund heims og var eitt sinn einkaeign kínversku keisarahirðarinnar. Saga Pekinghundsins nær lagt aftur, til 2000 f.k. Í margar aldir var hann tilbeðinn í musterum Kína. Pekinghundurinn var stöðugur félagi keisarans, og var fórnað eftir dauða hans. Fyrstu fjórir hundarnir bárust til vesturlanda árið 1860 með Breska hernum. Þeir voru gefnir Viktoríu Drottningu, hertogaynjunni af Wellington, og hertogaynjunni af
Richmond.

Umhirða
Dagelg burstun og kembing, svo feldurinn fari ekki í flóka, böðun vikulega. Fylgjast þarf með og þrífa þarf augun og fellingar í trýni.

Hreyfing
Pekinghundur er hentugur fyrir íbúðarlíf. Hann þarf aðeins stutta, daglega göngutúra, því hann er ekki mikill sporthundur.

Leyfilegir litir
Allir litir og litasamsetningar leyfilegar, að frátöldum albína og lifur lituðum. Marglitir jafnvel brotnir.

Hæð á herðakamb
15 - 25 sm.

Þyngd
2.5 - 5.5 kg.

Staðreyndir

  • Upprunaland: Kína
  • Upprunatími: Miðaldir
  • Fyrstu not: Félagi
  • Í dag: Félagi
  • Lífsskeið: 12-13 ár
  • Önnur nöfn: Pekingese, Peking Palasthund

Tenglar
Breski Peking klúbburinn
Ameríski Pekingklúbburinn

Viltu vita meira um tegundina?
Lestu nærmyndina um Pekinghundinn

Átt þú Peking?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net


Gismo Eigandi: Gerða HammerEinstæklega góður kærleiksbangsi. Gizmo elskar hesta

Gismo
Eigandi: Gerða Hammer

Einstæklega góður kærleiksbangsi. Gizmo elskar hesta eins og sést á myndinni.

Bonný  Eigendur: Bogi og Ingunnmynd af Bonný fædd 3 ágúst 2007,systir Trölla

Bonný
Eigendur: Bogi og Ingunn

mynd af Bonný fædd 3 ágúst 2007,
systir Trölla

Petra  Eigandi Ingibjörg G. SigurðardóttirPetra er fædd 8. jan 2007

Petra
Eigandi Ingibjörg G. Sigurðardóttir

Petra er fædd 8. jan 2007

Trölli Eigendur Stefán og Kristín hann er fæddur 3 ágúst 2007

Trölli
Eigendur Stefán og Kristín

hann er fæddur 3 ágúst 2007

Hugó Eigendur Siggi og Helga

Hugó
Eigendur Siggi og Helga

Hugó Eigendur Siggi og HelgaEinn dásamlegasti hundur sem við höfum kynnst.

Hugó
Eigendur Siggi og Helga

Einn dásamlegasti hundur sem við höfum kynnst.

Gutti   Eigendur: Gunnar, Sigríður, Aðalheiður og Gunnhildur, Keflavík

Gutti  
Eigendur: Gunnar, Sigríður, Aðalheiður og Gunnhildur, Keflavík

Gutti á ferðalagi á Snæfellsnesi í júlí 2007. Hann verður 3 ára í október.
Alltaf svo góður og skemmtilegur.
 
Foreldrar Gutta eru Bonný og Markó.

Bónó Eigandi: Hrefna Einarsdóttir og Gylfi.Þetta er svo Bónó, þriggja mánaða , f

Bónó
Eigandi: Hrefna Einarsdóttir og Gylfi.

Þetta er svo Bónó, þriggja mánaða , foreldrar hans eru Bonný og Markó. Hann er alveg ómótstæðilegur, ljúfur og skemmtilegur.

Bonný  Eigandi: Hrefna EinarsdóttirÞetta er hún Bonný prinsessan okkar hérna í V

Bonný
Eigandi: Hrefna Einarsdóttir

Þetta er hún Bonný prinsessan okkar hérna í Víðihlíðinni, foreldrar hennar eru Mira og Hektor.  Hún er fimm ára, algjör dama, en stjórnsöm og ákveðin. Hún er búin að eiga fjóra hvolpa með honum Markó. 

Móða Eigandi: Dilla

Móða
Eigandi: Dilla

Grýla Eigandi: Ellen Jónsdóttir10 ára í sept 2006.

Grýla
Eigandi: Ellen Jónsdóttir

10 ára í sept 2006.

Poco Eigandi: Ellen Jónsdóttir3 ára í júní 2006.

Poco
Eigandi: Ellen Jónsdóttir

3 ára í júní 2006.


Næsta síða


Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 9