Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 9 · Phaléne


Phaléne
 
 
 
Phaléne

Tegundalýsing
Phaléne (sem þýðir fluga á Frönsku) er lítill og fíngerður hundur,
hann er alltaf einstaklega fjörugur og vinalegur og bindur sig traustum böndum við eiganda sinn og verður stundum eigingjarn og þykist eiga hann. Hann getur laðað sig að lífi í borg sem byggð. Phaléne er barngóður hundur sem auðvelt er að þjálfa, hann hefur náð góðum árangri m.a. í hundafimi. Hann er líflegur, ástúðlegur, ákafur, ávalt árvakur og nokkuð fjarlægur ókunnugum. Í nokkrum löndum er Papillon og Phaléne skilgreindir sem sama tegundin, sú tegund er þá kölluð ,,Contiental Toy Spaniel.” Ræktunarmið þeirra er nákvæmlega það sama, nema þegar kemur að lýsingu á eyrnastöðu.

Uppruni
Sögur segja að Dwarf Spaniel sem var uppi á 16 öld, sé forfaðir Phaléne. Af feldinum og byggingu að dæma er þó líklegt að hann sé skyldur Evrópskum Spits hundum. Phaléne er eldri en Papillon sem kom fram á 19 öld og var líklega blandað við Þýska Dverg
spits, til að fá uppréttu eyrun. Ræktunarmiðið var viðurkennt árið 1937.

Umhirða
Regluleg burstun, sérstaklega eyru, skott og buxur. Böðun reglulega.

Hreyfing
Phaléne þar meðalmikla hreyfingu.

Leyfilegir litir
Allir litir leyfilegir á hvítum grunni. Hvítur litur á líkama og fótum verður að vera ráðandi. Nokkuð breið, hvít blesa er mikils metinn, en ríkjandi hvítur litur á höfði er galli. Varir, augnaumgjörð, og nef verður að vera svart.

Hæð á herðakamb
Hámark 28 sm.

Þyngd
Til eru tvö þyngdarmörk; 1.5 - 2.5 kg. Og 2.5 - 4.5 kg. Þyngd ætti að vera í samræmi við stærð.

Staðreyndir

  • Upprunaland: Frakkland - Belgía
  • Upprunatími: 1600
  • Fyrstu not: Félagi
  • Í dag: Félagi
  • Lífsskeið: 13-15 ár
  • Önnur nöfn: Continental Toy Spaniel, Fluga.

Villtu vita meira?
Lestu nærmyndina um Papillon og Phalene

Átt þú Phaléne?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net





Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 9