Tegundalýsing Púðlinn er virkur, mjög árvakur og mjög greindur hundur. Hann er vinalegur og tryggð hans er goðsögn, en hann getur verið ráðríkur. Mjög aðlögunarhæfur, mannblendinn og góðlyndur. Púðlar eru frábærir félagar, auðveldir og skemmtilegir í þjálfun. Í dag er hann aðalega félagi, en hefur en svolitla veiðigetu eins og forfeður hans, hann er nokkuð góður sundhundur með mjög gott lyktarskyn. Ef Púðli fær ekki þjálfun frá hvolpsaldri, getur hann verið erfiður. Hann þolir vel bæði heita og kalda veðráttu. Púðlinn er yfirleitt barngóður hundur. Til eru fjögur viðurkennd afbrigði af púðla, þá eftir stærð.
Uppruni Tegundin hét upprunalega Caniche, sem þýðir Andarhundur. Púðli var eitt sinn veiðihundur, komin af Barbet frá Suður Afríku og var líklega seinna blandað við Portúgalska Vatnahundinn. Til eru 4 afbrigði af Púðlum, flokkaðir eftir stærð. Litlu Púðlarnir eru minni afbrigði af Stóra Púðla. Litli Púðli, sem er örlítið stærri en gælu Púðli var eitt sinn vinsæll fjölleikahús hundur. Púðlinn festi rótum í Frakklandi og var það skráð sem upprunaland hans. Árið 1936 var ræktunarmiðið viðurkennt. Tegundin varð einstaklega vinsæl á milli 1950 – 1960, en þá var hugsað meira um magn en gæði og ýmis vandamál komu upp í tegundinni, þannig að vanda verður vel valið á ræktanda.
Umhirða Bursta þarf Púðla daglega, baða þarf hann reglulega og klippa klær eftir þörfum. Fara þarf með þá til fagnyrtis á u.þ.b. 2 mánaða fresti. Það eru til margskonar klippingar á Púðlum t.d. Ljónaklippingin, ræktunar klippingin (þá er hárið klippt í sömu lengd, um allan líkamann), Enska hnakkklippingin (með armbönd um fæturna), og hvolpaklippingin (meginlandsklipping með buxum), og lambaklipping (nokkuð stuttur með lengri hár á fótum, höfði og skotti). Eyrun ætti að skoða reglulega. Púðlar fara ekki úr hárum, og eru hentugir fyrir fólk með ofnæmi.
Hreyfing Hann hefur gaman af göngutúrum og þarf daglega meðallanga hreyfingu. Honum líkar ekki að vera skilinn einn eftir.
Leyfilegir litir Svartur, hvítur, brúnn, grár eða apríkósulitaður. Alltaf einlitur.
Hæð á herðakamb Stóri Púðli 45 - 60 sm. Meðalstóri Púðli 35 - 45 sm. Litli Púðli 28 - 35 sm. Gælupúðli, minni en 28 sm.
Þyngd Stóri Púðli u.þ.b. 22 kg. Meðalstóri Púðli u.þ.b. 12 kg. Litli Púðli u.þ.b. 7 kg. Gælupúðli, minni en 7 kg.
Staðreyndir
- Upprunaland: Frakkland
- Upprunatími: 1500
- Fyrstu not: Vatnasækir, félagi.
- Í dag: Félagi
- Lífsskeið: 11-15 ár
- Önnur nöfn: Poodle, Caniche
Tenglar Ameríski Púðla klúbburinn Finnski Púðla klúbburinn
Átt þú Púðla? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net
Smelltu á "næsta síða" hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri innsendar myndir 
Zorró Eigandi: Birgitta Guðnadóttir | 
Lukka Eigandi: Harpa
Hérna er mynd af henni Lukku frá Höfnum, sem er 2 ára púðluhundur. Myndin er tekin í Úlfarsfelli.
| 
Tína með hvolpana sína Eigendur: Inga Dóra | 
Bettý Eigandi: Sigrún Skúladóttir | 
Bettý Eigandi: Sigrún Skúladóttir
Þetta er hún Bettý mín, sem er 2ja ára. Hún er yndislegur hundur, bæði hlýðin og mikill leikur í henni. Hún er ættuð frá Hveragerði | 
Herkúles Eigandi: Sigrún. | 
Kara Eigandi: Nicolai og Hafdís. | 
Kara, Kolur og Dimma Eigendur: Nicolai, Ingibjörg og Kristófer | 
Tara Eigandi er Emil Valsson.
Tara er 6 ára. P.s. Er að leita mér að annarri tík. | 
Bóbó Eigandi: María Rún. | 
Sesar Eigandi: Hrefna Hafdal, Neskaupstað. | 
Dimma Nótt Eigandi: María Magnúsdóttir.
Dimma Nótt er dóttir Tímons og Tátu. | |
Næsta síða |