Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 9 · Griffon


Griffon
 
 
 
Griffon      

Tegundalýsing
Griffon er skemmtilegur og kubbslegur lítill hundur. Líflegur, greindur og árvakur. Til eru þrjú afbrigði af tegundinni, munurinn er hárafar og litur. Brussel Griffon og
Belgískur Griffon eru strýhærðir, með hár af miðlungslengd, og er það þétt og stíft. Petit Brabancon er snögghærður.

Griffon er skemmtilegur félagi, og semur yfirleitt vel við aðra hunda. Þeir þola frekar illa kalda veðráttu. Þess má geta, að í kvikmyndinni ,,As Good As It Gets" var einn af aðaleikurunum hundur af þessari tegund (
Brussel Griffon afbrigðið). Griffon á að vera í góðu jafnvægi. Tegundin ætti að hafa sterkleg bein,  en samt sem áður að vera tignarlegur í hreyfingum. Andlitið á Griffon er sérkennilegt og er nokkuð mannlegt á að líta.  Þeir verða mjög háðir eiganda sínum. Árverkni gerir þá að góðum, litlum varðhundum. jafnlyndur hundur sem þarf þó ákveðna þjálfun.

Uppruni
Vinsældir tegundarinnar risu á milli heimstyrjaldanna, það voru bókstaflega þúsundir af tíkum með hvolpa aðeins í Belgíu. Í dag hefur hann leyst af hólmi í vinsældum í nokkrum löndum, ættingja sinn Yorkshire Terrier. Þessir tegund er ein sú vinsælasta heimalandinu í Belgíu. Brussel Griffon er elsta afbrigðið aftegundinni.
Tegundin er líklega komin af Barbet. ,,Lagfæringar" á tegundinni byrjuðu fyrir árið 1880 í Brussel. Notaðar voru tegundirnar Affenpinscher, Franski Barbet, Yorkshire Terrier, Pug og King Charles Spaniel í Ruby lit. Brussel Griffon var fyrst sýndur í Brussel árið 1880. Fyrsta ræktunarmiðið var skrifað 1883 og því breytt árið 1904. Belgíski Griffon var talin þróaður með því að kynblanda Brussel Griffon við Pug og ef til vill einnig við litla Terrier hunda. Afbrigðið var viðurkennt árið 1908. Belgian Griffon var nær útdauður á tímum seinni heimstyrjaldarinnar. Hann er óþekktastur af Belgísku Griffon hundunum. Liklega hefur Pug verið bætt við stofninn, til að fá út snögga afbrigðið, Petit Brabancon.

Umhirða
Brussel Griffon og Belgian Griffon þarf að reyta reglulega. . Fylgjast þarf með augum.  Fylgjast þarf með augum og fellingum í andliti. Petit Brabancon þarfnast lítillar feldhirðu.

Hreyfing
Daglegar, meðallangar gönguferðir. Griffon líkar ekki að vera skilinn eftir einn. Hann er hentugur fyrir borgarlíf, en þolir hita ekki of vel.

Leyfilegir litir
Brussel Griffon: Rauðbrúnn Litlir svartir blettir á skeggi og höku eru leyfilegir.
Belgian Griffon: Svartur, svartur og rauðbrúnn og samsetning af svörtum og Rauðbrúnum .
Petit Brabancon: svartur og tan, eða rauðbrúnn. Svört gríma í andliti telst ekki galli.

Hæð á herðakamb
ð ekki skilgreind.

Þyngd
Þyngd 3.5 - 6 kg

Staðreyndir

  • Upprunaland: Belgía
  • Upprunatími: 1800
  • Fyrst not: Meindýraeiðir
  • Í dag: Félagi
  • Lífsskeið: 12-14 ár
  • Önnur nöfn: Griffon.

Tenglar
Halastjörnu ræktun
Himna ræktun

Gull-Gæfu ræktun

Áttu Griffon?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net


Villi Eigandi: Jóhanna Reykjalín

Villi
Eigandi: Jóhanna Reykjalín

Ugla Nótt Eigandi: Þóranna Vestmann Birgisdóttir

Ugla Nótt
Eigandi: Þóranna Vestmann Birgisdóttir

Tyra og hvolpar Eigendur: Himna ræktunTyra með Himan Lepp og Skrepp .  Eige

Tyra og hvolpar
Eigendur: Himna ræktun

Tyra með Himan Lepp og Skrepp . Eigendur af gotinu eru  Silla og Ásta María

Himna Leppur og Skreppur Eigendur: Himna ræktun

Himna Leppur og Skreppur
Eigendur: Himna ræktun

Himna Leppur Eigendur: Himna ræktun

Himna Leppur
Eigendur: Himna ræktun

Himna Leppur Eigendur: Himna ræktun

Himna Leppur
Eigendur: Himna ræktun

Tyra Tyrann  Eigandi Sigurbjörg VignisdóttirÞetta er hún Tyra Tyrann hún er Grif

Tyra Tyrann
Eigandi Sigurbjörg Vignisdóttir

Þetta er hún Tyra Tyrann hún er Griffon Bruxellois.

Channa´s Lady Killer

Channa´s Lady Killer "Robbi"
Eigandi: Ásta María Karlsdóttir.

Channa's Mr. Nice Guy

Channa's Mr. Nice Guy "Rolf"
Eigandi: Ásta María Karlsdóttir

Channa's Mr. Nice Guy

Channa's Mr. Nice Guy "Rolf"
Eigandi: Ásta María Karlsdóttir

Tyra Eigandi: Sigurbjörg.

Tyra
Eigandi: Sigurbjörg.

Robbi Eigandi: Ásta María og Sigurbjörg.Robbi á HRFÍ sýningunni í mars 2007.

Robbi
Eigandi: Ásta María og Sigurbjörg.

Robbi á HRFÍ sýningunni í mars 2007.


Næsta síða


Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 9