
|

Tibet Spaniel |
|
|
 |
Tegundalýsing Tíbet Spaniel er mjög sjálfstæður, stoltur, rólegur en lífsglaður smáhundur. Hann er góður fjölskylduhundur og tiltölulega auðveldur í þjálfun, svo framarlega sem hann sér einhvern tilgang með henni. Þessi hundur er ekki Spaniel, Það eina sem er líkt með Spaniel og þessari tegund er nafnið, því að hann hefur aldrei verið notaður við veiðar. Tíbet Spaniel er kröftugur, hraður og kvikur hundur, hann er ástúðlegur, blíður og greindur. Hann vantreystir ókunnugum og er því góður varðhundur.
Uppruni Uppruni Tíbet Spaniels er enn óljós. Þessi tegund gæti verið mjög gömul, líklega skyld Shih Tzu og Pekinghundinum, jafnvel gæti blöndum Tíbet Spaniels við Pug hafa skapað Pekinghundinn. Tíbet Spaniel var einn af uppáhalds hundum munkanna, þeir notuðu hann m.a. til að snúa bænahjólum sínum. Hann hefur lengi verið félagi munka og starfaði líklega einnig sem varðhundur (þar sem hann sat upp á klaustursveggjunum og lét vita um mannaferðir) og sem hitapoki (lág upp í bólum munka og hélt á þeim hita) í klaustrum þeirra.
Umhirða Bursta þarf yfir feldinn reglulega, sérstaklega hár á skotti, makka og buxum. Fylgjast þarf með augunum. Klær eru klipptar eftir þörfum. Baða þarf hundana þegar þess er þörf, þó ekki of oft.
Hreyfing Tíbet Spaniel hefur gott og gaman af hreyfingu. Hann þarf daglega, meðallanga göngutúra.
Leyfilegir litir Allir litir og litasamsetningar leyfilegar.
Hæð á herðakamb Rakkar u.þ.b. 27 sm. Tíkur u.þ.b. 24 sm.
Þyngd 4 - 7 kg.
Staðreyndir
- Upprunaland: Tíbet
- Heimaland: Bretland
- Upprunatími: Félagi munka
- Í dag: Félagi
- Lífsskeið: 13-14 ár
Tenglar Tíbráar Tinda ræktun Tíbet Spaniel deildin Sænski Tibet Spaniel klúbburinn Breskur Tibet Spaniel klúbbur Amerískur Tíbet Spaniel klúbbur
Villtu vita meira um tegundina? Lestu nærmyndina um Tibet Spaniel
Átt þú Tibet Spaniel? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net
Smelltu á "næsta síða" hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri innsendar myndir 
Perla Eigandi: Sigrún B. Sverrisdóttir. | 
Lotus Lady Eigandi: Sigrún B. Sverrisdóttir | 
Afrodíta og Eros. Eigandi Afródítu: Sigurbjörg Þrovarðardóttir. Eigandi Eros:Helga Harðardóttir.
Afrodíta og Eros hvolpar Perlu | 
Íslands Bitru Sesar Eigandi: Anna May Carlson
Sesar er 3 ára . | 
Tamara og Anja Eigandi: Helena Dögg Harðardóttir.
Þetta eru Tamara Tóa og Anja (mæðgur) Tamara verður 8 ára 4. ágúst en Anja 1 árs, 15 mars. | 
Tamara og Anja Eigandi: Helena Dögg Harðardóttir. | 
Tamara og Anja Eigandi: Helena Dögg Harðardóttir.
Þetta eru Tamara Tóa og Anja (mæðgur) Tamara verður 8 ára 4. ágúst en Anja 1 árs, 15 mars. | 
Anja Eigandi: Helena Dögg Harðardóttir.
Anja að vekja Tinnu Líf . | 
Zakkar Eigandi: Helena Dögg Harðardóttir
Zakkar að gefa Tinnu Líf stóóóran koss. Zakkar verður 9 ára 5 maí. | 
Bitru-Anja Eigandi: Jo Ann.
Þetta er mynd af henni í handklæði frá því að hún var hvolpur, nýkomin úr baði. | 
Bitru-Anja Eigandi: Jo Ann.
Þetta er hún Bitru-Anja,hún er 9 mánaða núna, hún er frábær hundur, fjörug og skemmtileg, hún er í uppáhaldi allra :) | 
Bitru-Anja Eigandi: Jo Ann. | |
Næsta síða |
|
|