Hvað er blendingur? Blendingar eru hundar sem eiga foreldra af ólíkum tegundum. Flestir hundar í heiminum eru blendingar. Þeir geta verið fallegir og skemmtilegir félagar.
Blendingar eiga oftast foreldra af tveimur tegundum. Einnig geta þeir átt svo marga afkomendur af ólíkum tegundum að ættir þeirra eru algerlega óljósar. Fólk gefur oft blendingunum tegundanöfn t.d. Skosk-Íslenskur (Íslenskur-Border Collie), Cocker-poo (Amerískur Cocker Spaniel-Poodle). En hvað sem þeir eru kallaðir, geta blendingar verið frábær gæludýr, ef þeir eru umhverfisvandir og þjálfaðir vel frá hvolpæsku, ins og gildir með alla hunda.
Sumir álíta blendinga ekki eins merkilega og hreinræktaða hunda og fá sér kannski blending sem fyrsta hundinn, til Þess að prufa. En það er langt frá því að vera rétt, blendingar geta verið frábærir fjölskylduhundar, varðhundar, leitarhundar og o.s.fr. og geta það jafn vel og hreinræktaðir hundar. Og ætti ekki að draga það að þjálfa þá og stunda með þeim t.d. hundafimi.
Ókostirnir við blendinga eru þeir að tilvonandi eigendur vita síður hvernig feldurinn, skapið eða stærðin verður. Þeir geta verið heilbrigðir, tryggir, vinalegir, geltnir, heilsuveilir, árásagjarnir, blíðir, auðveldir í þjálfun, erfiðir í þjálfun... allt eins og hreinræktaðir hundar, en erfiðara er að sjá út hvernig þeir eiga til með að vera, þá líka með tilliti til skapgerðar. En eins og áður kemur fram má reikna það nokkurn vegin út með því að skoða báða foreldrana. Pabbinn er ekki alltaf viðstaddur, en að skoða tíkina. Hvolpar í sama goti geta verið mjög ólíkir, einn loðinn, annar snöggur o.s.frv. Sumir eru alveg eins og mamman, aðrir eins og pabbinn og en aðrir fá sitt lítið frá báðum. Þannig að frekar erfitt er að segja nákvæmlega hvaða hvolpur á eftir að líkjast hverjum. Athuga skal einnig hvort móðirin sé líkamlega hraust og sé laus við öll líkamleg vandamál, sjúkdóma og sé geðgóð.
Hvort sem fólk fær hundinn hjá nágranna, dýralækni, athvarfi eða í dagblaðinu eru þarfir hans þær sömu og hjá öllum öðrum hundum. Fara þarf með þá í allar hvolpasprautur, til dýralæknis árlega í ormahreinsun og bólusetningar. Síðhærðir hundar þurfa reglulega burstun og eða klippingu, sumir þurfa mikla hreyfingu, fylgjast þarf með augum og eyrum, klippa þarf klær reglulega os.frv.
Þurfa góð heimili Um 75% hunda sem eru heimilislausir um heim allan eru blendingar. Ástæðurnar eru margar s.s. að eigandinn vissi ekki hvernig ætti að koma í veg fyrir slæma hegðun eða ráða bót á á slæmri hegðun. Margir þeirra eru þarna vegna þess að eigendur foreldra þeirrar vildu láta þau eignast hvolpa einu sinni eða eða gerðu sér ekki grein fyrir hvað marga blendinga vantar heimili. Hver svo sem ástæðan er, er ráðlagt að gelda blendinga, til að koma í veg fyrir slys.
Átt þú blending? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net
Smelltu á "næsta síða" hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri innsendar myndir 
Stella Eigandi Cinzia Fjóla Fiorini.
Hún er blendingur – Border collie og íslenskan fjárhund. | 
Kiara
Hún er 75% chihuahua 25 % PapillonEr hún ekki sætust eða hvað, yndislegust | 
Skotta. Eigendur: Beta og Grétar.
Fædd í maí 1996 dáinn 27.nóvember 2009. Líklega blönduð púðla og eitthvað annað. En það skiptii okkur engu máli, hún var yndisleg einsog hún var Hennar er sárst saknað, þó ekki sé meira sagt. | 
Katla Eigandinn María
Þetta er 50 % ísl ogg 50% borderkolli | 
Brúsi Eigandi: Kristófer | 
Brúsi Eigandi: Kristófer
Pabbi hans er ljós labrador og mamma hans er rottweiler. Hann er rosalegur vinnugarpur, barngóður, veiðihundur og góður vinur. 4. mán. á mynd | 
Samúel Ævar Hilmarsson Eig: Málfríður Agnes Kristjánsdóttir
blandaður beagle og ekki nákvæmlega vitað hvað annað. Hann er rétt yfir eins árs og er kallaður Sammi. Við fjölskyldan fengum hann gefins. | 
Valur Eigandi: Birgir Björgvinsson og Fjölskylda
7 ára blendingur af Weimaraner og Springer Spaniel Valur er rosalega ljúfur og góður hundur. Hann er ekki rosa mikil kélirófa hann getur samt átt það til að kúra smá. | 
Gutti Eigandi: Gróa B. Ingvadóttir, Spánn.
Gutti er 4 ára "Heinz 57" eins og blendingar eru kallaðir hér. Hann veit ekki að hann er hundur heldur að hann sé "maður" það þarf að halda á honum eins og litlu barni og svo þykir honum mjög gaman að láta halda á sér og fylgjast með krökkunum í sundlauginni. | 
Arabía | 
Arabía
Þetta er Arabía, hún er 8 mánaða. Annað foreldrið er Doberman og hitt er blanda af Border Collie og íslenskum. Hún er algjör kelirófa og er rosalega lítil í sér :) | 
Lilo Eigandi: Elínborg.
Hún er Boxer Labrador blendingur, og hefur blandast mjög skemmtilega. Frábær félagi og vinnusöm dama. | |
Næsta síða |