
|

Haldenstövare |
|
|
 |
Haldenstövare eða Halden Hound er ung tegund. Líkt og aðrar Norskar veiðihunda tegundir, veiðir hann ekki í hópum/flokkum. Hann er notaður við m.a. héraveiðar með eigandanum. Haldenstövare getur verið einstaklega ástúðlegur við fólk og hann er sjaldan glefsi en eins og á við um aðrar tegundir á að fylgjast með honum þegar hann er innan um ókunnug börn. Haldenstövare þolir vel kalda veðráttu. Hann er ágætur með öðrum hundum, og getur verið skemmtilegur félagi.
Uppruni Tiltölulega óþekktur, jafnvel í öðrum hlutum Skandínavíu. Haldenstövare er uppruninn í Suðuhluta Noregs, nálægt Halden. Hann varð til við blöndun Enska Refahunds við aðra Hound tegundir. Árið 1950 var tegundin bætt og fékk sitt núverandi útlit.
Umhirða Feldhirða er ekki mikil, en böðun þegar við á. Klippa þarf klær eftir þörfum.
Hreyfing Haldenstövare þarf mikla hreyfingu, hann þolir illa borgarlíf nema að fá daglegar gönguferðir og lausahlaup.
Leyfilegir litir Svartur með hvítum blettum, gulbrúnum skugga á höfðu, leggjum og stundum á milli hvítu og svörtu flekkjanna. Svartur verður ekki að vera alveg ríkjandi. Litlir svartir eða gulbrúnir blettir eru óæskilegir.
Hæð á herðakamb Rakkar 47 - 55 sm. Tíkur 44 - 52 sm.
Þyngd U.þ.b. 20 kg.
Átt þú Haldenstövare? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. halden@hvuttar.net
|
|
|