Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 4/6 · Svartur og Ljósbrúnn Coonhound


Svartur og Ljósbrúnn Coonhound
 
 
 
Svartur og Ljósbrúnn Coonhound      

Tegundalýsing
Mjög Harðger, árvakur og líflegur,
Coonhound eru aðgætnir og geta verið árásagjarnir veiðihundar. Ákveðin þjálfun er nauðsinleg. Greindur, tryggur og ákafur, getur verið nokkuð þrjóskur. Coonhound er góður veiðifélagi, ákveðinn og kröftugur. Þessi frábæri þvottabjarnar veiðihundur rekur einnig slóð bjarna og pokarotta.

Uppruni
Coonhound var skapaður með því að kynblanda Blóðhundi við Refahunda. Tegundir var viðurkennd af Ameríska ræktunarklúbbnum árið 1945. Önnur Coonhound afbrigði eru þ.á.m. ,,Redbone” (einlitur rauður feldur), ,,Bluetick” (Þrílitur feldur) og ,,Treeing Walker” (þrílitur og tvílitur feldur), eru ekki opinberlega viðurkennd.

Umhirða
Feldhirða ekki mikil. Hreinsa og fylgjast þarf með augum og eyrum.
Coonhound slefar nokkuð mikið.

Hreyfing
Ekki hentugir til íbúðarlífs, Coonhound þarf nokkuð mikla hreyfingu.

Leyfilegir litir
Svartur grunnur, með gulbrúnum flekkjum yfir augum, á neðanverðum fótum, trýni, og bringu. Brúni liturinn má ekki hylja meira en 15% af líkamanum.

Hæð á herðakamb
Rakkar 25 - 27 sm.
Tíkur 23 - 25 sm.

Þyngd
Ekki skilgreind í ræktunarmiði.

Staðreyndir

  • Upprunaland: Ameríka
  • Upprunatími: 1700
  • Fyrstu not: Veiddi þvottabirni
  • Í dag: Félagi, veiðir þvottabirni
  • Lífsskeið: 12 ár
  • Önnur nöfn: American Black and Tan Coonhound

Átt þú Coonhound?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net





Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 4/6