Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 4/6 · Otraveiðihundur


Otraveiðihundur
 
 
 
Otraveiðihundur      

Tegundalýsing
Otraveiðihundur þolir kulda vel, elskar vatn og er frábær sundhundur. Þeir geta eytt öllum deginum við veiðar í vatni. Otraveiðihundur er jafnlyndur, ástúðlegur og fjörugur hundur sem reynist frábær félagi. Hávært er gelt hans, þetta er vingjarnlegur, og viljugur hundur. Otraveiðihundur eru yfirleitt góður með öðrum hundum og dýrum á heimilinu ef þau alast upp saman. Hann eru hugrakkur, traustur og þrjóskur.

Uppruni
Þessi hundur er talinn vera kominn af
Saint Hubert Hound og Frönskum Griffon (Griffon Vendée og Griffon Nivernais) , svo var Harrier stríðhærðu Terrier blóði var bætt við stofninn. Otraveiðihundur var skapaður til að veiða otra eins og nafnið gefur til kynna, hann jafnvel elti þá ofaní vatnið. Eftir að otraveiðar í Englandi voru bannaðar árið 1970, varð tegundin sjaldgæf og er það enn í dag.

Umhirða
Bursta þarf yfir feldinn reglulega til þess að hann fari ekki í flóka. Fylgjast þarf með eyrum.

Hreyfing
Otraveiðihundur þarf mikla hreyfingu og nokkuð mikið pláss. Varast skal að hleypa þeim lausum, því eins og margir aðrir sporhundar vilja þeir oft týnast þegar þeir fylgja einhverri lykt.

Leyfilegir litir
Allir viðurkenndir Hound litir eru leyfðir: Heillitir, gráleitur,
sable, rauður, hvítleitur og blár. Getur haft smáa hvíta flekki á höfði, bringu, fótum, og á enda skottsins. Hvítir hundar geta haft smáa, lemon, bláa, eða gráa flekki.

Hæð á herðakamb
Rakkar u.þ.b. 67 sm. Tíkur u.þ.b. 60 sm.

Þyngd
U.þ.b. 32 kg.

Staðreyndir

  • Upprunaland: Bretland
  • Upprunatími: Fornöld
  • Fyrstu not: Otraveiðihundur
  • Í dag: Félagi
  • Lífsskeið: 12 ár
  • Önnur nöfn: Otterhound

Átt þú Otraveiðihund?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net





Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 4/6