Tegundalýsing
Harrier er týpískur Hound líflegur og skjótur hundur, með næmt lyktarskyn, mikið þol og mjög hljómmikla Hound rödd. Hann er vinalegur og á ekki að vera árásagjarn. Þessi litli flokksveiðihundur vinnur vel með öðrum hundum og er auðvelt að leiða. Harrier er tilvalinn við héraveiðar, hann veiðir einnig Refi. Einnig er hann notaður við skotveiðar á hjartardýrum og villigöltum.
Uppruni
Harrier er forn tegund fædd í Suður Englandi, sköpuð fyrir héraveiðar. Hann er náinn ættingi Enskra Sporhunda. Harrier er kominn af ,, Gascon Saintongeois,” einnig er talið að Refahunds og Anglo-French Hound blóði hafi verið bætt við stofninn.
Umhirða
Feldhirða lítil, hárlos er þó nokkuð. Klær eru klipptar eftir þörfum.
Hreyfing
Harrier þar mikla hreyfingu og nóg pláss.
Leyfilegir litir
Allir leyfilegir Hound litir. Oftast hvítur með svörtum til appelsínugulra flekkja, eða þrílitur með svarta skikkju á baki.
Hæð á herðakamb
48 - 55 sm.
Þyngd
U.þ.b. 25 kg.
Staðreyndir
- Upprunaland: Bretland
- Upprunatími: Miðaldir
- Fyrstu not: Héraveiðihundur
- Í dag: Félagi, veiðihundur
- Lífsskeið: 11 - 12ár
- Önnur nöfn: Harehound
Átt þú Harrier?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net