Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 4/6 · Basset Griffon Vendée


Basset Griffon Vendée
 
 
 
Basset Griffon Vendée      

Staðreyndir
Til eru fjögur afbrigði af tegundinni: Risa Griffon Vendée, milli Griffon Vendée, Lítill Griffon Vendée Basset og Stór Griffon Vendée Basset. Griffon Vendée er traustur, harðger og þrjóskur hundur. Hann er nokkuð erfiður í þjálfun því hann er sjálfstæður og strangviljugur. Risa Griffon Vendée Basset veiðir hjartardýr og villigelti. Miðlungs Griffon Vendée er notaður í alla veiði, fyrir utan kanínuveiðiar. Stóri Griffon Vendée er flokksveiðihundur með næmt lyktarskyn, hann hræðist hvorki vatn né hrjúft landssvæði. Stóri Griffon Vendée Basset er hraðastur af öllum Basset hundum, hann er ákveðinn, getur haldið hröðum gönguhraði, og troðið sér jafnvel í gegnum þyrnótt kjarr. Litli
Griffon Vendée Basset er orkumikill, djarfur og mjög líflegur. Hann veiðir einn eða í pörum, og er tilvalinn kanínuveiðihundur, er einnig notaður á fashana. Rólegur, ástúðlegur, vinalegur, og góður félagi. Flestir litlu Griffon Vendée Basset eru haldnir sem félagar.

 

Uppruni

Risa Griffon Vendée (upphaflega afbrigðið), er talinn kominn af ,,Chien Blanc du Roy (eða Greffier), Ljósgulbrúna Brittany Griffon, ,,Chien Gris de Saint Louis,” og Bresse Griffon. Árið 1946 var tegundin nánast; útdauð. Endurlífguð undir leiðsögn M. A. Dézamy, sem var yfir Griffon Vendée klúbbnum, nýtt ræktunarmið var gefið út árið 1969. Kynblöndun við Billy og Stóra Anglo-Franska Hound, gerði tegundina léttari, hraðari, og agaðri. Miðlungs Vendée Griffon er eins og bætt og yfirvegaðari afbrigði af Risa Vendée Griffon. Milli Vendée Griffon var þróaður snemma á 20. öld. Eftir seinni heimstyrjöldina var honum kynblandað við Gráa Porcelaine Harrier. Stóri Griffon Vendée Basset, er kominn af Risa Vendée Griffon. P. Dézamy sóttist eftir dæmigerðum Basset með beinar lappir, og litli Griffon Vendée Basset, þéttari, hyrndari, einnig sá minnsti og vinsælasta afbrigðið, varð þá skapaður.

 

Umhirða

Strýhærðan feldinn þarf að reyta, sérstaklega ef um sýningarhund er að ræða. Bursta þarf þá reglulega. Basset Griffon Vendée fer lítið úr hárum.

 

Hreyfing

Ekki heppilegir borgarhundar, þeir hentar betur fyrir sveitalíf því þeir þurfa nóg pláss og mikla hreyfingu.

 

Leyfilegir litir

Einlitir: Litbrigði af ljósgulbrúnum, hvítleitum , eða gráhvítleitum. Tvílitur: Hvítur og appelsínugulur, hvítur og svartur, hvítur og grár, hvítur og ljósgulbrúnn. Þrílitur: hvítur, svartur og ljósgulbrúnn. hvítleitur, hvítur, grár og ljósgulbrúnn.


Hæð á herðakamb
Risa Griffon: Vendée: 60 - 65 sm. Meðalstóri Griffon: Vendée: 48 - 55 sm. Stóri Vendée Griffon Basset: 38 - 42 sm. Litli Vendée Griffon Basset: 34 - 38 sm.


Þyngd
Risa Griffon: Vendée: u.þ.b. 35 kg. milli Griffon: Vendée: u.þ.b. 29 kg. Stóri Vendée Griffon Basset: 18 kg. Litli Vendée Griffon Basset u.þ.b. 15 kg.

 

Staðreyndir

  • Upprunaland: Frakkland
  • Upprunatími: 1700/1800
  • Fyrstu not: Veiðihundur
  • Í dag: Félagi, veiðihundur
  • Lífsskeið: 12 ár
  • Önnur nöfn: Griffon Vendée, Flanders Hound.

Basset Griffon Vendée?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net





Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 4/6