Tegundalýsing Shih Tzu er fjörugur, líflegur og kjarkmikill hundur sem er harðger og sterkbyggður, með mikinn persónuleika. Hann er yfirleitt barngóður hundur og einnig góður með öðrum hundum og gæludýrum. Shih Tzu verður strax einn af fjölskyldunni og nýtur þess að vera í kringum hana. Hann þráir mannlegt samfélag. Shih Tzu er virkur og athafnasamur, og unir sér vel í borg sem byggð. Hann er góður varðhundur sem lætur vita ef einhver ókunnugur nálgast húsið. Nokkuð sjálfstæður og stundum þrjóskur, Shih Tzu er rólyndur og góður félagi. þessi blíði og káti hundur þarf mikla ást og umhyggju, hann er talin einn af mannblendnustu asísku tegundunum.
Uppruni Shih Tzu var fyrst ræktaður í Kína (Tíbet) fyrir mörg hundruð árum síðan. Kínverjar töldu þá heilaga. Að fá Shih Tzu að gjöf þótti mikill heiður. Í mörg hundruð ár var það siður hins andlega trúarleiðtoga, Dalai Lama, að gefa kínverska keisaranum slíka hunda af bestu gerð að gjöf. Kínverjar voru tregir að hleypa hundunum úr landi og bárust fyrstu hundarnir til Englands 1908. Líklegast er að Shih Tzu hafi orðið til við kynblöndun Lhasa Apso við Pekinghund. Árið 1954 viðurkenndi FCI tegundina. Heimaland Shih Tzu er Bretland.
Umhirða Bursta þarf Shih Tzu daglega og baða reglulega. Fylgjast þarf með eyrum og augum. Sumir eigendur klippa feldinn stutt, þá er feldhirða þar af leiðandi minni. Shih Tzu fer lítið sem ekkert úr hárum.
Hreyfing Shih Tzu ætti að fá daglegar gönguferðir og að hafa aðgang að garði. Honum líkar ekki að vera skilinn eftir einn.
Leyfilegir litir Allir litir leyfilegir. Hvít blesa á enni og hvítt í enda skottsins æskilegt á marglitum hundum.
Hæð Ekki hærri en 26 sm.
Þyngd 4.5 – 8.1 kg.
Staðreyndir
-
Upprunaland: Kína (Tíbet)
-
Heimaland: Bretland
-
Upprunatími: 1600
-
Fyrstu not: Hundur keisarahirðarinnar í Kína
-
Í dag: Félagi
-
Lífsskeið: 12-14 ár
-
Önnur nöfn: Krýsantemu hundur.
Tenglar Shih Tzu á Íslandi tzus.net Perluskins
Viltu vita meira um tegundina? Lestu nærmyndina um Shih-Tzu.
Átt þú Shih Tzu? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net
Smelltu á "næsta síða" hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri innsendar myndir 
Monza Rún Eigendur: Rúna Óladóttir og Erlingur Jónsson
Þetta er Monza Rún, hún er Shih Tzu tík undan Lottu og Mika. Ræktandi hennar er Guðrún Jóhannsdóttir | 
Úlli (Perluskins Everyone´s Fantasy) Eigandi: Anja Björg Kristinsdóttir.
Úlli er 10 mánaða á þessari mynd. Algjör gullmoli. | 
Max, Úlli, Mika og Anton Eigandi: Anja Björg Kristinsdóttir. | 
Mika Eigandi: Anja Björg Kristinsdóttir
Mika 2 ára á sýningu, þegar hann öðlaðist íslenskan meistaratitil. | 
Perluskins Everyone´s Fantasy Eigandi: Anja Björg Kristinsdóttir | 
Úlli og Mika Eigandi: Anja Björg Kristinsdóttir
Úlli og Mika pabbi. | 
Perluskins Everyone´s Fantasy Eigandi: Anja Björg Kristinsdóttir
Úlli er 11vikna á myndunum. Aljör snúður. PAbbi hans er Mika og Afinn er Anton, sem er hér lika á síðunni . | 
Perluskins Tom Cruze Eigandi: Stella Sif Gísladóttir www.briard.is
Cruz ásamt henni Ílu sem er af tegundinni Briard. | 
? Eigandi: Hermann Guðmundsson | 
Perluskins Tom Cruise Eigandi Stella Sif Gísladóttir | 
Perluskins Tom Cruise Eigandi Stella Sif Gísladóttir | 
Perluskins Tom Cruise Eigandi Stella Sif Gísladóttir | |
Næsta síða |