
|

Russian Toy |
|
|
 | Tegundalýsing Russian Toy er ein minnsta hundategund í heimi. Þeir eru sérstakir en glæsilegir í útliti. Háfættir og fínbyggðir, Skrokkurinn er kassalaga, höfuðið er frekar lítið. Sumir líkja þeim við lítil hjartardýr í útliti. Til eru tvö afbrigði af tegundinni, snögghærðir og síðhærðir. Síðhærðu hundarnir eru með mikinn fjaðurskúf á eyrum, og örlítið á skotti og aftan á fótum. Russian Toy eru líflegir, greindir og traustir félagar. Þeir eru Léttir á fæti, óttalausir og eiga ekki að vera feimnir né árásargjarnir. Athafnasamir litlir hundar sem hafa gaman af því að fylgja eiganda sínum hvert sem er. Mjög kátir litlir hundar.
Uppruni Russian Toy er tegund sem var næstum útdauð og enn í dag er þessi tegund ekki algeng. Í byrjun 20 aldar var tegundin eins sú vinsælasta smáhundategundin í Rússlandi. En frá tímabilinu 1920 - 1950 stoppaði ræktun á hreinræktuðum Toy Terrier nær alveg og var það tegundinni nær að falli. Það var ræktað undan mikið af ættbókalausum hundum. Það var ekki fyrr en um 1955-1960 sem að það var farið að huga af því að rækta upp tegundina aftur. Árið 1958 áttu tveir snögghærðir Toy Terrierar rakka hvolp með miklu kögri á eyrum, útlimum og á skotti. Var síðhærða afbrygðið fyrst kallað "Moscow Longhaired Toy terrier."
Umhirða Umhirða er lítil. Bursta þarf yfir hárin, sérstaklega eyrun á síðhærðu hundunum reglulega svo ekki komi flókar. Klær eru klipptar eftir þörfum.
Hreyfing Þótt Toy Terrier sé litill og smábeinóttur, er hann orkumikill og hefur gaman af allri hreyfingu og ætti að fá hana reglulega
Leyfilegir litir Svartur og tan, brúnn og tan, blár og tan. Einnig rauður af öllum litbrigðum með eða án brúnni eða svartri slikju. Sterkir litir æskilegri í öllum litbrigði.
Hæð á herðakamb 20-28 cm.
Þyngd Rakkar og tíkur vega upp að 3 kg.
Staðreyndir
- Upprunaland: Rússland
- Upprunartími: 1900
- Fyrstu not: Félagi
- Í dag: Félagi
- Lífsskeið: 12-14 ár
- Önnur nöfn: Russian Toy Terrier
Átt þú Russian Toy? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net 
Businka Eigandi: Alina. | 
Businka Eigandi: Alina.
Russian Toy er háfættari en með grennri leggi og minni líkama en Chihuahua. Ljósi hundurinn er Chihuahua. | 
Businka Eigandi: Alina
Þetta er fyrsti hreinræktaði Russian Toy hundurinn á Íslandi. | 
Businka Eigandi: Alina
Þessi black and tan er Russian Toy, en hinn ljósi er Chihuahua sem sami eigandi á. |
|
|
|