
|

Basset Fauve De Bretagne |
|
|
 |
Tegundalýsing Basset fauve de Bretagne er minnstur af Basset hundunum. Þetta eru lífsglaðir hundar, rólyndir og þægilegir. Basset fauve de Bretagne eru hrífandi og ástúðlegir, þeir hafa frábært lyktarskyn og eru því mjög góðir að rekja slóð. Líflegir og blíðir, og henta vel með börnum. Tegundin hentar ágætlega með öðrum dýrum séu þau alin upp snemma saman, en gleyma skal ekki að tegundin var ræktuð sem veiðihundur upphaflega. Þeim líður best í faðmi fjölskyldunnar, þar sem þetta eru miklar félagsverur. Ekki besti varðhundurinn, en lætur yfirleitt vita ef ókunnuga ber af garði. Tegundin er ekki mjög þekkt, en nýtur vaxandi vinsælda. Kjarkmikill og duglegur hundur, fyrirtaks félagi og fjölskylduhundur.
Uppruni Basset fauve de Bretagne er upprunin í Frakklandi, nánar tiltekið í í Bretagne-héraði. Tegundin er komin af stærri frönskum veiðihundum, sem veiddu í flokkum bráð aðalega eins og kanínur, en allt upp í stærri bráð eins og villisvín. Eins og forfeðurnir var Basset fauve de Bretagne notaðir við veiðar, en í dag sjást þeir aðalega sem heimilishundar og í sýningarhringnum. Í seinni heimstyrjöldinni var tegundin nær útdauð og varð það mikill vinna nokkurra ræktanda að ná stofninum upp að nýju. Talið er að blóð Basset Griffon Vendeen og Standard Wirehaired Dachshund hafi jafnvel verið bætt inn í stofninn. Tegundin var viðurkennd af FCI árið 1926.
Umhirða Basset Fauve De Bretagne hafa strýhærðan feld sem þarf að reyta nokkrum sinnum á ári. Að öðru leiti er feldhirða auðveld, bursta þarf yfir þá stöku sinnum.
Hreyfing Tegundin hefur gaman af allri hreyfingu og útiveru, og þarf að fá meðalmikla, daglega hreyfingu.
Leyfilegir litir Ljósgulbrúnn (hjartarlitur). Frá gyltum til rauðguls. Lítil hvít stjarna á bringu leyfileg.
Hæð á herðakamb 32-38 cm. Mínus/plús 2 sentimetrar
Þyngd Ekki skilgreind
Staðreyndir
- Upprunaland: Frakkalnd
- Heimaland: Frakkland
- Upprunartími: 1700/1800
- Fyrstu not: Veiðihundur
- Í dag: Félagi, veiðihundur
- Lífsskeið: 12 ár
- Önnur nöfn:
Tenglar Íslandsnollar ræktum
Átt þú Basset Fauve ? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net
|
|
|