
|

Íslenskur Fjárhundur |
|
|
 | Tegundalýsing Íslenski Fjárhundurinn er norrænn hundur og eini þjóðarhundur okkar Íslendinga. Hann er afbragðs smalahundur sem þolir nánast hvaða veðráttu sem er. Íslendingurinn er þolgóður og mjög fimur og er m.a. notaður til reka og safna saman búfénaði. Einnig er hann afbragðs félagi sem er ávallt brosandi. Harðger og vinalegur hundur sem á það til að gelta, sem á þó ekki að vera einkennandi fyrir hundinn. Íslenski hundurinn er viljugur, námfús, forvitinn og fjörmikill. Til eru tvö afbrigði, snöggt hárafar og langt hárafar (Lubbi).
Uppruni Íslenski fjárhundurinn er mjög gamallt hundakyn, jafngamall búsetu á landinu. Litlu munaði að hann dæi út og voru einungis nokkrir hundar eftir þegar hafist var handa um markvissa ræktun hans árið 1967. Íslenski hundurinn er skildur Norska Búhundinum.
Umhirða Bursta þarf yfir Íslenska hundinn reglulega, sérstaklega síðhærða afbrigðið. Klippa þarf klær eftir þörfum. Böðun eftir þörfum. Hárlos er mikið.
Hreyfing Íslenski hundurinn þarf daglega góða hreyfingu. Hann nýtur þess að vera úti í öllum veðrum.
Leyfilegir litir Litbrigði eru með ýmsu móti, en þó skal einn aðallitur ávallt vera ríkjandi. Aðallitir eru: Gulur í ýmsum blæbrigðum, allt frá ljósgulum lit til dökkrauðguls litar. Leirhvítur. Mórauður. Grár. Svartur.
Hæð á herðakamb Rakkar 46 cm Tíkur 42 cm.
Þyngd Ekki skilgreind.
Staðreyndir
-
Upprunaland: Ísland
-
Upprunatími: 800
-
Fyrstu not: Fjárhundur
-
Í dag: Fjárhundur og félagi
-
Lífsskeið: 12 ár
-
Önnur nöfn: Icelandic dog, Icelandic sheepdog, Islansk Farehond, Friaar Dog.
Tenglar Deild Íslenska Fjárhundsins Danski Íslenski Fjárhunds klúbburinn Eldhamars ræktun Hnúks ræktun Hrafnatófta ræktun Íseyjar ræktun Íslandssólar ræktun Kersins ræktun Mánaskálar ræktun Reykjadals ræktun Stjörnuljósa ræktun Sunnusteins ræktun Töfra ræktun Þórdunu ræktun
Viltu vita meira um tegundina? Lestu nærmyndina um Íslenska Fjárhundinn
Átt þú Íslenskan fjárhund? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net
Smelltu á "næsta síða" hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri innsendar myndir 
Eigandi: Sólrún Ragnarsdóttir
Til vinstri er tíkin Þoka frá Ólafsfirði, hægri er Kersins-Skellir og fremstur er Lord Voffington (Lilli)
| 
Kátur Eigandi:Svanfríður Oddgeirsdóttir
Ættbókarnúmer:IS07881/04 Fæddur:2004-01-28 | 
Keilis-Fróði Eigandi: Alexandra Eir
F. 2003 | 
Perla Eigandi: Jón Alex | 
Skinna Eigandi: Maja Siska
Pabbi hennar er Stefstels Skrúður og mamma hennar er Varða. Hún elskar að smala fé! | 
Ægir Eigandi: Margrét Hauksdóttir.
Hann elskar snjóinn og á sumrin þykir honum skemmtilegst að fara með okkur í ferðalög. Gönguferðir um Elliðaárdalinn og Hólmsheiði eru fastir liðir daglega. | 
Ægir Eigandi: Margrét Hauksdóttir
Ægir fæddist í október 2003 og fengum við hann í janúar 2004. Hann er ákaflega skemmtilegur félagi og alltaf til í að leika við okkur og alger meistari í boltaleik. | 
Ægir Eigandi: Margrét Hauksdóttir
Ægir er Íslendingur í húð og hár, ættaður frá Fróns ræktun í Grundarfirði. Faðir hans er Frónar Freyr, og afi í föðurætt Meistari Hektor. | 
Eldhamars Alfa Eigandi: Sólbjört Sigríður Gestsdóttir | 
Eldhamars Alfa Eigandi: Sólbjört Sigríður Gestsdóttir | 
Brósi Eigandi: Sigrún Sólmundardóttir, Belgsholti Melasveit.
Hér er hann Brósi í fjöruferð undir Melabökkum. | 
Brósi Eigandi: Sigrún Sólmundardóttir, Belgsholti Melasveit.
Hér er hann Brósi í fjöruferð undir Melabökkum. | |
Næsta síða |
|
|