
|

Amerískur Refahundur |
|
|
 | Tegundalýsing Amerískur refahundur er minni, sneggri og ljósari að lit heldur en sá Enski. Hann er vinalegur, ástúðlegur, þolgóður og kraftmikill hundur. Ameríski refahundurinn er barngóður og hentar vel með öðrum hundum, hann er tilvalinn félagi. Þolir illa borgarlíf nema að hann fái næga hreyfingu. Amerískur refahundur hefur hljómfagra rödd og veiðir refi og villisvín. Þessi tegund er lítið þekkt.
Uppruni Fyrsti flokkurinn af Enska Refahundinum kom fyrst til Ameríku 1650. Kerry Beagle, Írskir veiðihundar og Franskir veiðihundur voru einnig notaðir til að fá út Ameríska Refahundinn eins og hann lítur út í dag.
Umhirða Umhirða er ekki mikil. Hárlos er þónokkuð.
Hreyfing Amerískur Refahundur þarf mikla daglega hreyfingu, einnig þarf hann að hlaupa laus á öruggu svæði.
Leyfilegir litir Allir Hounds litir leyfilegir.
Hæð á herðakamb Rakkar 56 - 69.5 sm. Tíkur 53-61 sm.
Þyngd Ekki skilgreind í ræktunarmiði.
Staðreynd
Átt þú Amerískan Refahund? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net
|
|
|