Tegundalýsing
Ástúðlegur, rólegur, og mjög blíður hundur. Blóðhundurinn er ánægjulegur félagi. Hann hefur verið notaður sem sporhundur víða um heim. Hann hefur ótrúlega næmt lyktarskyn, sem gerir hann að frábærum sporhundi, þeim besta. Blóðhundurinn er kjarkmikill, þolgóður, harðger, ákveðinn, og mjög sjálfsöruggur. Skynsamur og hlýðinn, hann hefur sterka rödd. Hann er var um sig innan um ókunnuga en ekki árásagjarn, það gerir hann góðann varðhund. Blóðhundurinn þarf milda en ákveðna þjálfun. Ef farið er hörkulega með hundinn getur hann orðið óvinveittur og jafnvel hættulegur.
Uppruni
Fyrir mörgum öldum ræktuðu munkarnir í St. Hubert klaustrinu í Belgíu frábæra sporhunda. Tegundin var haldin þar til 1790. Þegar William sigurvegari flutti þá til Bretlands á 11 öld, var tegundin kölluð Blóðhundur vegna þess að þetta var hundur aðalsins, eða kannski vegna þess að hann var notaður við mannaveiðar. Blóðhundur er einnig kallaður Saint Hubert Hound, og er frægur forfaðir sporhunda nútímans.
Umhirða
Fylgjast þarf m,eð augum og eyrum. Hárlos er nokkuð.
Hreyfing
Blóðhundurinn getur aðlagað sig að íbúðarlífi, en þarf mikla hreyfingu.
Leyfilegir litir
Svartur og gulbrúnn (mikils metið), einlitur gulbrúnn, brúnn og gulbrúnn. Svört auðkenni ættu að mynda hnakk á bakinu og á síðunni, fyrir ofan hálsinn, og efst á höfðinu. Hvítur er ekki leyfður.
Hæð á herðakamb
U.þ.b. 67 sm.
Tíkur U.þ.b. 60 sm.
Þyngd
40 - 48 kg.
Staðreynd
Átt þú Blóðhund?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net