Auglýsing


VÍS



Heim · Tegundir · Tegundahópur 4/6 · Langhundur


Langhundur
 
 
 
Langhundur      

Tegundalýsing
Langhundarnir eru miklir karakterar og geta verið mjög skemmtilegir félagar. Þessi kröftugi, fallegi og hugrakki hundur hefur mikið þol. Langhundurinn er ástúðlegur og glaðvær. Hann er sjálfstæður, nokkuð herskár, og reynir stundum að hafa yfirráð yfir öðrum hundum þótt stærri séu.  Snögghærða afbrigðið er hvað orkumest, á meðan sá strýhærði er sveitalegastur og hefur hvað mestu veiðihæfileikana. Síðhærði Langhundur er rólegastur af þeim þremur. Allir langhundarnir þurfa ákveðna en milda þjálfun frá unga aldri.
Í dag er Langhundur haldin sem félagi, og er ef til vill mest þekktasta tegundin í heiminum.

Uppruni
Til eru þrjár feldgerðir af Langhundum; Snögghærður, strýhærður, og síðhærður. Til eru einnig þrjú afbrigði af Langhundum: Rabbit, Miniature og Standard, sem skiptast eftir stærð. Uppruni Langhunda hefur verið óráðinn um tíma. Snögghærða afbrigðið er elst og er talið hafa verið skapað með kynblöndun snögghærða
Jura Bruno við Pinscher hunda. Síður- og strýhærður langhundur voru svo ræktaðir út frá þeim snögghærða. Á 17 öld var sá síðhærði skapaður, strýhærði var skapaður seint á 19 öld með því að kynblanda snögghærða Langhundi við Schnauzer, Dandie Dinmont Terrier, og kannski Skoska Terrier. Fyrsta ræktunarmiðið var skrifað 1879. Þýski Langhundaklúbburinn (Deutscher Teckel Club), var stofnaður árið 1888. Standard afbrigðin (sérstaklega sá strýhærði) var notaður sem sporhundur við veiðar á héra, kanínum, einnig til að fæla refi og greifingja úr bælum sínum. Í dag er strýhærði Langhundurinn vinsælastur.

Umhirða
Síðhærði langhundur þarf reglulega burstun, sérstaklega á fótum. Strýhærða Langhund þarf að reyta. 

Hreyfing
Langhundar eru heppilegir fyrir borgar- og íbúðarlíf, sérstaklega sá síðhærði. Samt sem áður þurfa þessir litlu hundar þónokkra hreyfingu og hafa gaman af henni.

Leyfilegir litir
Snögghærði Langhundur: Einlitur: Rauður, gullrauður, gull með sambland af svörtum hárum. Tvílitur: Svartur, brúnn, grár, hvítur á útlimum, gulbrúnn með flekkjum yfir augum, á hliðum trýnisins , á bringu og uppleggjum, og fótum. – Ljósbrúnn, ljósgrár, eða hvítur bakgrunnur með óreglulegum dökk brúnum, gull, gull rauðum, eða svörtum blettum. Stríðhærður: Allir litir leyfilegir. Síðhærður: sömu litir og hjá þeim snögghærða.

Hæð á herðakamb
26 - 37 sm. fer eftir afbrigði.

Þyngd
Standard Langhundur: Minna en 9 kg.
Miniature langhundur: Minna en 4 kg. 
Rabbit Langhundur: Minna en 3.5 kg. 

Staðreyndir

  • Upprunaland: Þýskaland
  • Upprunatími: 1700
  • Fyrstu not: Grenaveiðihundur
  • Í dag: Félagi og veiðihundur
  • Lífsskeið: 11-12 ár
  • Önnur nöfn: Dachschund

Átt þú Langhund?
Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net

Smelltu á "næsta síða" hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri innsendar myndir


Árbæjarræktun Eigandi: Edda Ólafsdóttir.Langar að senda ykkur mynd frá Árbæjarræ

Árbæjarræktun
Eigandi: Edda Ólafsdóttir.

Langar að senda ykkur mynd frá Árbæjarræktun.

Katla Eigandi Arna Björk Halldórsdóttir.Rottweiler tíkin er Ronja 4 ára sem er

Katla
Eigandi Arna Björk Halldórsdóttir.

Rottweiler tíkin er Ronja 4 ára sem er "stóra systir" kötu.

Katla Eigandi Arna Björk Halldórsdóttir.

Katla
Eigandi Arna Björk Halldórsdóttir.

Katla Eigandi Arna Björk Halldórsdóttir.Kata er 3 ára min.dachshund hún er fædd

Katla
Eigandi Arna Björk Halldórsdóttir.

Kata er 3 ára min.dachshund hún er fædd 12 janúar 2006.

Tara Eigandi: Kolbrún Gigja.

Tara
Eigandi: Kolbrún Gigja.

Stúfur og Tara Eigandi: Kolbrún Gigja.

Stúfur og Tara
Eigandi: Kolbrún Gigja.

Stúfur og Tara Eigandi: Kolbrún Gigja.

Stúfur og Tara
Eigandi: Kolbrún Gigja.

Freyja Eigandi: Anna BergMig langar til að senda ykku mynd af henni Freyju litlu

Freyja
Eigandi: Anna Berg

Mig langar til að senda ykku mynd af henni Freyju litlu, en hún flutti til Íslands sl. sumar og alveg elskar að búa hér á klakanum. Freyja er í HRFÍ.

Golíat Eigendur; Sunna og Hjörtur, Reykjavík.Golíat er góður og blíður, honum la

Golíat
Eigendur; Sunna og Hjörtur, Reykjavík.

Golíat er góður og blíður, honum langar að eignast hvolpa ef það er sæt tík sem hefur áhuga.
Hann er 5 ára fd.22.02.2002 
S 822-7939
Maximus  Eigandi: Jón Einar og Martina, Neskaupstað.

Maximus
Eigandi: Jón Einar og Martina, Neskaupstað.

Maximus  Eigandi: Jón Einar og Martina, Neskaupstað.Ég er frekar glaður hundur.

Maximus
Eigandi: Jón Einar og Martina, Neskaupstað.

Ég er frekar glaður hundur. Ég fæddist 8/október 2004. Ég veit ekkert skemtilegra en að fara út að synda og labba.

Stenhaven´s Freyja Eig: Anna Berg og StefánStenhaven´s Freyja ætlar ad flytja me

Stenhaven´s Freyja
Eig: Anna Berg og Stefán

Stenhaven´s Freyja ætlar ad flytja med okkur til Íslands í sumar.
Fyrsta syningin sem hún ætlar ad vera med í er í Herning 5.nóv,en Freyja er bara 10 mánada núna, vid vonum bara tad besta ;)


Næsta síða


Tegundir
 
 
 

Tegundahópur 4/6