Þessi kröftugi, líflegi, óþreytandi hundur er mjög virkur, ávalt árvakur og mikill vinnuhundur. Hann er tryggur, mjög blíður með börnum, og ekki feiminn eða árásagjarn. Þjálfun ætti að vera ákveðin en mild. Corgi er djarfur, en vingjarnlegur, greindur og áhugasamur í framkomu. Á aldrei að vera feiminn eða grimmur. Hann er gáskafullur og skemmtilega ástúðlegur, en getur einnig verið var um sig og fastheldinn.
Uppruni
Pembroke Velskur Corgi barst til Bretlands með flæmskum vefurum á miðöld og gæti verið skyldur sumum Norðlenskum tegundum. Til eru tvö afbrigði af Gorgi tegundinni, Cardigan Velskur Corgi og Pembroke Velskur Corgi. Þessi tvö afbrigði voru svo kynblönduð til að gera þau líkari í útliti. Síðan 1934, hafa Cardigan og Pembroke sitt hvort ræktunarmiðið. Pembroke er vinsælli, og á hann m.a Georg Konungi VI að þakka, því hann kynnti tegundina fyrir konungsfólki, Þegar hann gaf dótur sinni Elísabetu Drottningu II, einn slíkan.
Umhirða
Vikuleg burstun.
Hreyfing
Hann getur aðlagað sig að íbúðar- og borgarlífi ef hann fær reglulega hreyfingu og pláss til að hlaupa um.
Leyfilegir litir
Einlitur: Rauður, gulur, ljósgulbrúnn, gulbrúnn, með eða án hvítra flekkja á leggjum, bringu, hálsi og höfði.
Hæð á herðakamb
25 til 30 cm.
Þyngd
Rakkar 10 - 12 kg. Tíkur 10 - 11 kg.