
|

Rákhundur |
|
|
 |
Tegundalýsing Rákhundurinn er harðger, sterkbyggður, og mjög hraður hundur. Þessi kjarkmikli hundur hefur gott þol og næmt lyktarkyn. Hann vinnur í flokkum, og getur ráðið við stór kattardýr en hann var ræktaður upp sem veiðihundur fyrir stóra bráð. Ólundalegur við ókunnuga, og er því áreiðanlegur varðhundur. Rákhundurinn getur verið árásagjarn gagnvar öðrum hundum og umhverfisþjálfa þarf hann vel. Hann er rólegur, geltir sjaldan, og getur verið skemmtilegur og ástúðlegur félagi sem þarf sína hreyfingu. Ákveðin þjálfun nauðsinleg.
Uppruni Þessi Suður-Afríski hundur var nefndur eftir rákinni á bakinu á honum. Hann er talinn komin af Mastiff, Bloodhound o.fl hundum sem nýlendubúar Ameríku fluttu inn með sér. Ræktunarmiðið var skrifað árið 1922. Tegundin er mikils metin í Ameríku og Kanada sem bjarnaveiðihundur.
Umhirða Feldhirða er ekki mikil. Fylgjast þarf með eyrum. Hárlos er þó nokkuð.
Hreyfing Hann þarf töluverða hreyfingu. Rákhundurinn þolir bæði hita og kulda vel.
Leyfilegir litir Fölur hvítleitur til rauðleits- ljósgulbrúns. Höfuð, búkur, leggir, og skott verða að vera í sama lit. Litlir hvítir flekkir á bringu og tám er leyfilegir.
Hæð á herðakamb Rakkar 63.5 - 68.5 sm. Tíkur 61 - 66 sm.
Þyngd U.þ.b. 35 kg.
Staðreyndir
- Upprunaland: Suður-Afríka
- Upprunatími: 1800
- Fyrstu not: Veiðihundur
- Í dag: Félagi og Varðhundur
- Önnur nöfn: Rhodesian Ridgeback, African Lion Hound.
Átt þú Rákhund? Sendu inn mynd af hundinum þínum, og verður myndin birt í myndasafninu hér fyrir neðan. hvuttar@hvuttar.net 
Nala Eigandi Þórarinn Ingólfsson og Anna Vilbergsdóttir.
Kom til Íslands 2005. Gaut 11.5.08 12 hvolpum sem heilsast vel. Faðir Askur (mynd hér við hlið.) | 
Askur Eigandi: Helgi og Kolla. | 
Canis Eigandi:Merete og Þorsteinn.
Þetta er hann Canis sem kom frá Sviðjóð i sept.06. | 
Askur Eigandi: Helgi og Kolla.
Nú er Askur orðinn "stór" 7 mánaða minn maður | 
Askur Eigandi: Helgi og Kolla. | 
Askur Eigandi: Helgi og Kolla.
Askur er staðsettur í Finnlandi en er von á honum til landsins sep-okt 2003. Hann er sonur Shaka. | 
Shaka Helgi og Kolla.
Hundar frá ræktandanum mínum í Finnaríki, pabbinn okkar nær ;-) | 
Shaka Helgi og Kolla.
Þetta er Shaka, pabbi hundsins okkar sem fæddist 13/5.2003 og kemur til landsins í okt-nóv, spennó :) |
|
|
|