Auglýsing


VÍS



Heim · Greinar · Nærmynd · Papillon og Phalene


Papillon og Phalene
 
 
 
Papillon og Phalene      

Fjörugt fiðrildi og fluga.
Eftirfarandi upplýsingar eiga bæði við Papillon og Phalene, en notast er við Papillon því að sú tegund er mun vinsælli í heiminum í dag. En ræktunarmið tegundanna er það sama fyrir utan eyrun, þau eru lafandi á Phalene, en upprétt á Papillon.

Uppruni og saga:
Uppruna tegundarinnar má rekja til 14. aldarinnar. Orðið spaniel þýðir spánskur hundur en að öðru leyti hefur það reynst erfitt er að staðsetja uppruna Papillons, Frakkland og Belgía ásamt Spáni segja uppruna frá þeirra löndum. Vinsælasta kenningin er sú að þeir séu franskir að uppruna því að nöfn þeirra, Papillon og Phaléne eru frönsk og þýða fiðrildi og mölfluga (fluga).

Í dag er ekki hægt að greina í sundur Continental Toy Spaniel, Royal Toy Spaniel og Papillon frá þessum fyrstu árum ræktunar, allir voru ræktaðir sem kjölturakkar og voru í uppáhaldi hjá aðlinum sem hafði efni á að rækta og móta þessa smáhunda til að þóknast þeirra lífsstíl. Niðurstaðan varð sú að veiðihundar voru ræktaðir til að þjóna húsbóndanum á heimilinu en smáhundarnir til að vera fíngerðir, sjarmerandi og fallegir, með tryggu og elskulegu viðmóti fyrir aðra fjölskyldumeðlimi.

Besta lýsing á þróun tegundarinnar er á málverkum sem aðallinn lét mála af sér með ástkæru hundunum sínum og er elst þeirra mynda sem hefur Papillon á er máluð af listamanninum Sasetta (1392-1450), hann málaði nokkrar myndir í röð og er lítill hvítur og svartur Papillon á nokkrum þeirra Tizano Vercelli (Titan) málari frá 16. öldinni málaði mynd af stúlku sem var með hvítan og rauðan Papillon. Það voru fleiri málarar sem máluðu Papillon svo sem Antonine Pesne (1683-1757), Jacob Bogdany (1660-1724), Peter Paul Rubens (1557-1640), Franz Pourbus (1569-1622)

Nokkrar frægar sögur eru til af Konungum og Drottningum sem hafa átt Papillon meðal annars Henri lll Konungur sem var svo hrifin af tegundinni að hann ferðaðist sjálfur til Lyon, þar sem þeir voru ræktaðir og hann borgaði himinháar upphæðir fyrir þá. Hann átti þrjá uppáhaldshunda sem var leyft að sofa hjá honum og passa uppá hann. Einn þessara hunda var Liline og hún var með Konungi í St. Cloud þegar að munkurinn Jacques Clement bað um Konunglega áheyrn. Liline varð svo frávita að andúð á munkinum að Kóngurinn varð að loka hana inni í öðru herbergi. Þegar munkurinn var orðinn einn með Kóngi rétti hann honum bréf og stakk hann síðan í bringuna. Munkurinn reyndi að komast undan en Liline og félagar hennar geltu svo mikið að verðirnir fóru athuga hvað væri að, þeir náði munknum. Það var þá of seint fyrir Hinrik lll sem lá deyjandi og stundi: " Ef að ég bara hefði farið eftir viðvörun Liline"

Marie Antoinette var með tvo Papillon hunda þar sem hún var höfð í haldi þar til hún var hálshöggvin, þjónustufólk hennar hugsuðu um þá þar til þeir dóu. Húsið er nú nefnt Papillon Húsið (The House of the Papillon)

Madam de Pompadour, ástkona Louis XIV Kóngs, átti tvo Papillon hunda, Inez og Mimi, það er til listaverk kallað Tryggðin (The Faithful) eftir Baron Albert Houtart sem sýnr Madam de Pompadour með Papillon í kjöltunni.

Karakter Papillon og Phalene:
Papillon er almennt glaður, ákafur og líflegur lítill hundur, mjög greindur og nokkuð öruggur í eigin hugsun um að hann sé í raun stór hundur í litlum líkama. Hann hefur fjörugt og mannblendið lunderni og ætti alls ekki að sýna nein merki um árásargirni. Papillon er ánægður með langa göngutúra og finnst einnig frábært að kúra með eiganda sínum heima við, fyrir framan sjónvarpið eða við arininn, hann nýtur þess að þóknast eigandnum, og verður oft háður honum.

Papillon er árvakur hundur, og fylgist vel með öllu. Ágætis varðhundur því þeir láta þig vita þegar ókunnugan ber að garði. Þeir geta gelt þegar að bjallan hringir en bjóða svo gestina velkomna þegar þeir kynnast þeim.

Papillon er fullur af þokka, hann getur verið ósvífinn, forvitinn og ótrúlega ástúðlegur. Þeir eru ekki hundar sem verða ánægðir að vera lokaðir inni á ræktunarbúi eða vera mikið einir, þeir vilja taka þátt í lífi fjölskyldunnar.  Papillon geta verið svolitlar dramadrottningar, t.d. þegar verið er að klippa klær, og venja verður þá strax við reglulega umhirðu. Bæði papillon rakkar og tíkur eru skemmtilegir félagar. Þeim líkar almennt vel við aðra hunda og dýr.

Papillon er athafnasamur hundur, þó ekki taugaveiklaður. Tegundin er einnig heppileg til þess að nota í vinnu t.d. fyrir heyrnarlausa, og sem þjónustuhundar (heimsækja elliheimili og spítala) og geta það sko alveg jafn vel og stóru voffarnir.  Papillon hefur náð góðum árangri í m.a. hundafimi, því þeir eru hraðir og læra vel.

Umhirða
Glæsilegur hundur. Papillon hefur fínan, ríkulegan, og silki kenndan feld án undirfeld. Sem þarf burstun reglulega, þá aðallega eyru, buxur og skott, þar sem hárin eru síðari. Böðun u.þ.b. mánaðarlega, jafnvel oftar hjá sýningarhundunum, en það fer eftir hverjum og einum. Klippa þarf klær og hár á milli þófa reglulega, þó ekki toturnar framan á loppum.

Heilsufar
Sjúkdómar í tegundinni: Papillon eru nokkuð heilbrigðir smáhundar en þó eins og hjá flestum tegundum er hægt að finna arfgenga sjúkdóma. Eins og fyrr var nefnt er PRA (progressive retinal atrophy eða vaxandi sjónrýrnun) í tegundinni. Þó er þessi sjúkdómur alls ekki algengur í dag og aðeins einstaka tilfelli hafa verið að koma upp öðru hvoru. Mikilvægt er að skoða hundana eftir 3 ára aldurinn þar sem sjúkdómurinn gerir yfirleitt ekki vart við sig fyrr. En hann lýsir sér þannig að hundurinn byrjar að sjá verr og verr og að lokum getur hann orðið nánast blindur. Ekki er til lækning við þessum sjúkdóm. PL (hnéskeljarlos) er sjúkdómur sem er nokkuð algengur hjá papillon eins og mörgum öðrum smáhundategundum. Ekki er enn vitað hvernig þessi sjúkdómur erfist en hann lýsir sér þannig í stuttu máli að hnéskelin losnar og getur gengið til í aðra hvora áttina. Þessum sjúkdómi er skipt í fjögur stig eftir alvarleika og í flestum tilfellum geta hundar sem fá hnéskeljarlos í fyrstu og annarri gráðu lifað ágætu lífi án þess að það hái þeim eitthvað sérstaklega. Flestir hundar sem fá hnéskeljarlos í þriðju og fjórðu gráðu þurfa hins vegar á skurðaðgerð að halda. Ekki er skylda að skoða hundana við þessum sjúkdóm en þó gera allir ábyrgir ræktendur það enda auðvelt fyrir dýralækni að finna hvort hnéskelin sé laus eða ekki. Á síðustu árum hafa svo hjartagallar af fleiri en einum toga gert vart við sig hjá tegundinni. Þó svo að þeir séu ekki orðnir mjög algengir er mikilvægt að ræktendur sem og kaupendur tegundarinnar séu á varðbergi til þess að svo verði ekki.

Útlit
Lítill og fallegur Toy spaniel, eðlilegt jafnvægi í byggingu, hár eru síð. Snoppa er miðlungs löng, styttri en höfuðkúpa, þokkafullur en í senn kröftugur, ber sig tígulega með auðveldum og glæsilegum hreyfingum. Líkami er dálítið lengri en á hæð.

Augun eru möndlulaga, frekar stór og dökk, og frekar lágt sett á höfði. Eyrun eru hátt sett, hjá báðum afbrigðum, lafandi á Phalene og upprétt á Papillon, með löngum hárum. Skottið er borið glaðlega yfir bakið, nokkuð hátt borið, þó á það ekki að krullast eða liggja flatt.

Allir litir leyfilegir á hvítum bakgrunni, nema lifur litaður. Á líkama og leggjum verður hvítur litur að vera ríkjandi. litarhaft svart.

Papillon er oftast í kringum 3-4 kg en leyfilegt er að hann sé allt frá 1.5 kg og upp í 5 kg. Papillon er fíngerður og léttur smáhundur sem á að hreyfa sig auðveldlega og bera sig tignarlega.

Á íslandi
Það eru þó nokkrir papillon hundar á íslandi. Fyrstu hundarnir voru fluttir inn árið 1989, rakki og tík en undan þeim komu ekki hvolpar. 1992 var svo flutt in par og undan þeim komu tvö got, en í þeim stofni greindist PRA. Svo hefur innfluttum hundum fjölgað og hvolpar litið dagsins ljós, og í dag er tíl ágætis stofn papillon hunda á Íslandi. En engin Phalene er til hér á landi.

Tengiliður fyrir Papillon á Íslandi er  Sólveig Þórarinsdóttir, s: 699-2920 / 555-2920.

Heimildir: Papillon.is, Enski Papillon klúbburinn, Papillon klúbburinn í Ameríku, FCI ræktunarmið Papillon.


Pappilon að nafni Golden Leafs Morgan.

Pappilon að nafni Golden Leafs Morgan.

CH Golden Leaf's Archie, 9 ára gamall.

CH Golden Leaf's Archie, 9 ára gamall.

Phalene hvolpur.

Phalene hvolpur.

Phalene í hundafimi

Phalene í hundafimi

Phalene, litla flugan

Phalene, litla flugan

Forvitnir.

Forvitnir.

Pommi og Papillon að leika.

Pommi og Papillon að leika.

Í hundafimi.

Í hundafimi.

Papi.

Papi.

Papillon.

Papillon.

Ch. Forevr Ears Your Sign. Papillon

Ch. Forevr Ears Your Sign. Papillon

Phalene hvolapskott.

Phalene hvolapskott.


Næsta síða


Greinar
 
 
 

Nærmynd