Þann 18. apríl sl. heimsótti Hvuttar.net Hundasnyrtistofuna ehf, Bíldshöfða 14.
Þar vinna fjórar konur við það að gera hunda landsmanna hreina og fína. Eigendur stofunnar eru Margrét Kjartansdóttir og Þórunn Þorsteinsdóttir.
Margrét lærði hundasnyrtinn í Svíþjóð fyrir 16 árum síðan og hefur starfað sem hundasnyrtir á Íslandi síðan þá. Fyrst vann hún á stofunni sinni í miðbænum, seinna stofnaði hún Hundasnyrtistofuna. Einnig hefur hún farið í nám á Ítalíu og á ýmis námskeið. Hún og fjölskylda hennar eiga sjö hunda, þrjá Írska settera, þrjá Dvergschnauzer og einn Enskan Pointer. Rækta þau Settera og Dvergsnása undir ræktunarnafninu Helguhlíðar.
Þórunn lærði úti í Bretlandi þar sem hú bjó um árabil og rak þar stofu og verslun í tvö og hálft ár í Bristol á Englandi með góðum árangri. Hún lærði þar í skóla sem heitir Canine Comfort, og vann hún þar til tvenna verðlauna fyrir árangur sinn sem snyrtir. Hún og fjölskylda hennar eiga labradortík frá Leirur-ræktun sem heitir Tessie og er 5 vikna og ennþá hjá mömmu sinni. Úti áttu þau Dobermann tíkina Dimmu og Labrador tíkina Tinnu sem þau fluttu með sér út á sínum tíma frá Íslandi.
Á stofunni vinna einnig Metta Ragnarsdóttir sem er búin að vinna þar í ár. Metta lærði þar einnig og á hún Yorkshire Terrier hundinn Mikka sem fylgir henni oft í vinnunna.
Kata er Pólskur hundasnyrtir og búin að vinna á stofunni í 1/2 ár. Áður vann hún í tvö ár á hundasnyrtistofu í Póllandi, og átti hún og fjölskylda hennar bónabæ með fullt af dýrum.
Nóg að gera Að sögn Margrétar og Þórunnar eru að koma í snyrtingu bæði gæluhundar og sýningarhundar, þannig að það er mjög fjölbreytt að gera. Sérstaklega er mikið að gera fyrir sýningar, í kringum jólin og á sumrin. þá eru svona háanna tímarnir.
Þær segja það alltaf vera að aukast að Íslendingar nýti sér þessa þjónustu. Það eru að koma hundar af öllum stærðum og gerðum frá snöggum Chihuahua upp í loðinn St. Bernards. Einnig allskonar blendingar, stórir sem smáir.
Margir hundar koma reglulega og eiga jafnvel fasta tíma, sumir vikulega. ,,þeir sem koma vikulega eru þá yfirleitt sýningarhundar með gólfsíðan feld sem þurfa vikulegt bað og blástur."
,,Hundamennig á Íslandi er alltaf að verða meiri og meiri og er fólk farið að huga af þörfum hundanna svo að þeim líði sem best. Einnig bjóðum við fólki upp á að koma við og láta klippa klær á voffunum sínum sem er líka nauðsinlegt."
Verslun líka Auk snyrtistofu eru þær með verslun sem er með ýmsum hundavörum, t.d. má nefna hágæða hundasnyrtivörur, hundafóður, leikföng, fatnaður, bæli og fleira. Verið er að gera upp verslunina og er planið að hafa þema hverju sinni, svosem ferðaþema eða eitthvað slík og er þá lagt áheyrslu á þær vörur.
Heimasíða stofunnar er hundasnyrtistofan.is
Myndir smelltu á "næsta síða" fyrir fleiri myndir. 
Þórunn og Margrét með hundinn Anton á milli sín. | 
Setter í baði | 
Þórunn að baða. | 
Mikið líf og fjör. Metta og Kata að störfum. | 
Margrét og Metta að snyrta Pomeranian hunda. | 
Hér geta hundarnir beðið eftir eigendum sínum. | 
Poodle hunda þarf að snyrta sérstaklega. | 
Margrét að snyrta. | 
Margrét snyrtir hér fallega Poodle tík. | 
Shih tzu hundurinn Max, lýst vel á Schnauzer tíkina Grímu. | 
Þórunn. | 
Þórunn að snyrta Amerískan Cocker Spaniel hund. | |
Næsta síða |