Auglýsing


VÍS



Heim · Greinar · Viðtalið · Berglind Magnúsdóttir


Berglind Magnúsdóttir
 
 
 
Berglind Magnúsdóttir

Berglind Magnúsdóttir er ung kona sem er hugmyndarík og flink í höndunum. Hún hannar mjög fallegar vörur  úr leðri og málar undir heitinu b.magg design

Hún er hundaeigandi og á þrjá snögga Chihuahua hunda. Paolo (ISCH Perluskins Cairo Paolo), Pixi (Eyðimerkur Zeta for LargerThanLife) og Pumu.
En Paolo varð einmitt heiðraður sem afrekshundur ársins 2008 af Hundaræktarfélagi Íslands, fyrir að aðstoða Berglindi sem er með MS sjúkdóm

Berglind býr meðal annars til sýningartöskur úr leðri. Með hólfi að framan fyrir nammibita og aukahólfi að aftan fyrir aukahluti eins og kúkapoka eða aukasýningartaum. Hafa töskurnar vakið lukku og verið mjög vinsælar á íslenskum sýningum

Handtöskur með tegundamyndum á er skemmtileg hugmynd sem að vekur sífelt meiri athygli. Á leðurtöskunum er saumuð í tegundarmynd úr ekta skinni. Hver taska er einstök.

Nýjung eru fallegar hundaólar sem saumaðar eru úr mjúku leðri og skreyttar með roði. Einstakar og flottar.

Einnig gerir Berglind ýmsar aðrar vörur, þ.ám. hundalyklakippur, belti, armbönd, töskur o.flr.

Hægt er að fá nánari upplýsingar um vörur Berglindar á síðunni hennar berglind.vefurinn.is/ og um hundanna hennar á vefsíðunni www.largerthanlife.is.


Hlýraskraut á skó, sem hægt er að setja á hvað háhælaða skó sem er.

Hlýraskraut á skó, sem hægt er að setja á hvað háhælaða skó sem er.

Lyklakippur Chihuahua

Lyklakippur Chihuahua

Þessi er gerð úr nautaleðri og Antilópuskinni

Þessi er gerð úr nautaleðri og Antilópuskinni

Hundaól úr lituðu þorskroði og hreindýraskinni. mjúk og góð

Hundaól úr lituðu þorskroði og hreindýraskinni. mjúk og góð

Mjóhundaól úr leðri skreytt með íslensku þorsksroði

Mjóhundaól úr leðri skreytt með íslensku þorsksroði

Sýningartaska með Chihuahua

Sýningartaska með Chihuahua

Sýningartaska

Sýningartaska

Dverg Schnauzer tegundartaska

Dverg Schnauzer tegundartaska

Afghan Hound taska

Afghan Hound taska

Shih Tzu tegundataska.

Shih Tzu tegundataska.




Greinar
 
 
 

Viðtalið