Auglýsing


VÍS



Heim · Heilsufar og umhirða · Heilsa · Brjósklos í hundum


Brjósklos í hundum
 
 
 
Brjósklos í hundum

Brjósklos er ein algengasta örsök lömunnar hjá hundum.

Hryggurinn nefnist röð  beina sem tengjast saman, og verja þessi bein m.a. mænuna. Mænuna er hægt að líka við vírum af taugum, sem ganga upp í heila og stjórnar hreyfingum útlima og annarrar starfsemi líkamans.

Brjóskið er kleinuhringslaga með mjúkri miðju og er staðsett á milli hryggjaliðanna. Brjóskið eða diskurinn er stasettur rétt fyrir neðan mænuna í hundum og köttum. Hver diskur hefur eins og áður kom fram mjúka miðju (nucleus pulposus) og harðari ytra birði (annulus fibrosus). Diskurinn formar brú á milli tveggja hryggjaliða og virkar sem dempari, sem gefur styrk og hreyfanleika í bakið.

Afhverju fá hundar brjósklos?
Röskun á heilbrigðum diski getur orsakast vegna áverka (s.s. fall, misbeyting eða bílslys) sem verður til þess að brjóskið gengur til. Það er algengasta orsökin og eru sumar tegundir í meiri áhættu en aðrar, þá ber að nefna Langhunda, Basset Hound, Lhasa Apso, Shih Tzu og Pekinghund. Þessar tegundir hafa langt bak og stutta fætur.

Hver eru ummerki brjósklos?
Þrýstingur á mænuna og taugarnar sem að ganga frá mænunni, sem lýsir sér sem bakverkir og/eða skertingu á taugaboðum út í líffæri og útlimi, sem leiðir til  lömunnar alveg eða að hluta, því að taugarnar sem að klemmast við brjósklosið senda ekki boð til heilans.

Flest brjósklos eru staðsett í neðri hluta baksins en getur einnig verið staðsett ofar eða í hálsinum. Hægt er að sjá það u.þ.b. út hvar brjósklosið á sér stað, því að ef hundurinn lamast á öllum fjórum þá er brjósklosið lang líklegast í hálsinum eða ofarlega í baki. Ef það er afturfætur og aftur hluti þá er það í neðri hluta baksins.

Oft þá byrjar hundurinn að missa máttinn, og er með bakverki, vælir þega hann er tekin upp eða klappað á bakinu, eða sýnir merki um óstöðugleika í afturfótum. svo limpast hann niður og er sem lamaður að aftan á nokkrum klukkutímum. Stundum lamast líffæri svo að hundurinn missir og ræður ekki við þvag og saur.

Flestir eigendur taka eftir þessu eftir fall eða stökk, og stöku sinnum verða heilbrigðir hundar lamaðir að aftan án skynilegrar sýnilegrar ástæðu. 

Hvernig er brjósklos í hundum greint?
Með taugaprófun og þreyfingu hjá dýralækni. Rönken getur hjálpað til, en allt getur líka litið eðlilega út á rönkenmyndum því hvorki mænan né brjóskið sést á rönken. Besta leiðin til að sjá brjósklos er með  ómsegulskoðu, en slíkt er ekki boðið upp á fyrir gæludýr hér á landi í dag.

Hvernig er brjósklos meðhöndlað?
Meðhöndlunin fer eftir hverju tilfelli fyrir sig, í flestum og mildari tilfellum er hundinum gefið lyf, bólgu og verkjastillandi eða stera ásamt hvíld, hundurinn má ekkert reyna mikið á bakið fyrst um sinn. Einnig er gott að fara með hundinn i nudd og sjúkraþjálfun og notast við heita bakstra. Í stöku tilfellum er skurðaðgerð krafist til að fjarlækja brjóskið sem þrýstir á mænuna, þegar að hundurinn bregst ekki við lyfjameðferð og sýnir ekki bata. Einnig er önnur aðgerð þekkt þar sem hluti af beininu er fjarlægt til að minnka pressuna á mænu. Engin slík aðgerð hefur verið framkvæmd hérlendis hingað til.

Um 80% af hundum sem fá brjósklos ná bata, en það getur tekið frá nokkrum vikum upp í fleiri mánuði, og er hvert tilfelli mismunandi. Flestir eru þó töluvert betri eftir 6 vikur, en það tekur hvítu blóðkornin u.þ.b. þann tíma að éta upp brjóskið sem ýtist út, en stundum gerir hann það ekki.


Hér sést brjósklos í hryggjalið

Hér sést brjósklos í hryggjalið

brjósklos á þessari mynd.

brjósklos á þessari mynd.




Heilsufar og umhirða
 
 
 

Heilsa