Auglýsing


VÍS






Dekurdýr opna
 
 
 

Ný hundasnyrtistofa, sem er einnig verslun og dýralæknaþjónusta opnaði á dögunum í Dalvegi 18, Kópavogi.

Sóley Halla Möller og Ásta María Guðbergsdóttir eru eigendur Dekurdýra. Dekurdýr er ekki bara hundasnyrtistofa, við tökum líka við köttum í snyrtingu og einnig er sérverslun á staðnum með vörum fyrir hunda og ketti og ljósmyndahorn svo hægt verður að fá myndir af dýrum sínum hreinum og fínum.

Einnig verður boðið upp á almenna dýralæknaþjónustu á staðnum, s.s bólusetningar, örmerkingar og fleira. Björgvin Þórðarson dýralæknir sér um þá hlið. Þetta er eina hundasnyrtistofan á landinu sem býður upp á þessa þjónustu. Þannig geta viðskiptavinir sameinað ferð sína til dýralæknis og hundasnyrtisins og jafnvel keypt inn fóður og aðrar nauðsynjar fyrir hundinn í leiðinni en við bjóðum upp á hágæða fóður og fjölbreytt vöruúrval.

Sóley Halla hefur starfað sem hundasnyrtir frá árinu 1995 en Ásta María frá 2006. Sóley sem einnig er með kennsluréttindi hefur nýútskrifað Ásdísi Björk Guðmundsdóttur sem einnig mun starfa hjá þeim við hundasnyrtingar. Við erum einnig með nema, Birnu Willard en hún er vön kattamanneskja og átti og ræktaði persa í mörg ár. Ásdís og Birna eiga án efa eftir að koma sterkar inn í hundasnyrtigeirann, báðar eru þær mjög efnilegar.





Eldri fréttir