
|

vann þýska hæfileikakeppni |
|
|
|
Tíkin sem sippar og fer kollhnís vann þýsku hæfileikakeppnina - Myndbandið
Tíkin Prima Donna og eigandi hennar Yvo Antoni sigurðu í þýsku hæfileikakeppninni Das Supertalent. Prima Donna sippaði með Yvo, klifraði upp fætur hans, og fór kollhnís, auk þess að sýna fleiri kúnstir, í úrslitaþættinum.
Áhorfendur í sjónvarpssal stóðu á fætur og hylltu Kölnarbúann Yvo og Jack Russell hundinn Prima Donnu áður en tilkynnt var um að þau hefðu unnið. Þau fengu um helming þeirra níu milljóna atkvæða sem greidd voru.
Oft eru það söngvarar sem vinna hæfileikakeppni eins og þessa. Þeir fylgja sigrinum gjarnan eftir með plötu en það verður ekki gert í tilfelli Yvo og Prima Donnu. „Við gefum ekki út plötu en við förum í sýningarferð.“
Sjá Myndbandið
Pressan greindi frá |
|